Björgunarfélag : Fréttir
Björgunarfélagið gefur Framtíðinni stafræna myndavél
Af tilefni fimmtíu ára afmælis Slysavarnadeildarinnar Framtíðarinnar á Hornafirði sem var haldið á Víkinni í gærkvöldi færði Björgunarfélag Hornafjarðar deildinni gjöf sem var stafræn myndavél. Þær Slysavarnakonur hafa í þessi fimmtíu ár unnið frábært starf að björgunarmálum í Hornafirði og tekið fullan þátt í störfum Björgunarsveitarinnar við útköll og hefur þá oft verið lögð nótt við dag þegar leit hefur staðið yfir og í ræðu þeirra Björgunarsveitarmanna þökkuðu þeir Framtíðarkonum stuðninginn í þessi fimmtíu ár og vonuðust til að þeir myndu njóta þess áfram um ókomin ár.
Núverandi stjórn Slysavarnadeildarinnar Framtíðarinnar skipa: Hrefna Lúðvíksdóttir, Ingibjörg Ragnarsdóttir Eygló Illugadóttir, Anna María Kristjánsdóttir og Sigríður Jóhannesdóttir.
