Björgunarfélag : Fréttir
Hundurinn Dídí sóttur á fjall
Á laugardaginn var kom hjálparbeiðni til Björgunarfélags Hornafjarðar um að fara á móti rjúpnaskyttu sem var í vanda uppi við Miðskerstind. Hafði maðurinn farið ásamt hundi sínum Dídí á rjúpnaveiðar. Þegar upp í tindinn var komið vildi ekki betur til en að Dídí skrikaði fótur og skarst hún nokkuð á tveimur fótum. Þegar veiðimaðurinn var kominn hálfa leið niður var hann orðinn örmagna að bera hundinn og fékk okkur félagana til að koma á móti sér. Var farið á Höfn 2 upp með Ketilaugarfjalli og gengið í um eina klukkustund að þeim félögum. Þar var Dídí sett í öndvegis vacum börur og líkaði henni bara vel.
