Fréttir Brunnhóll

Vorverkin í sveitinni

"Vorvindar glaðir, glettnir og hraðir......."

Gestkvæmt hefur verið á Brunnhól undanfarna daga og hefur ekki verið svo líflegt í gistingu í apríl undanfarin ár. Ísborðið frá Jöklaís er komið á sinn stað og er vinsælt sem fyrr.  Vorverkin í sveitinni eru á fullu og vinnudagurinn oft langur.  Fyrst var gengið í að keyra út skít og nú er unnið við að plægja og herfa kornakrana.  Sáð verður í um 40 ha og er það svipað og á síðasta ári.

Það hafa einkum verið erlendir gestir sem hér hafa dvalið að undanförnu og af mörgum þjóðernum.  Búið er að ráða starfsfólk fyrir sumarið en auk heimafólks verða hér sex starfsmenn í sumar en í mislangan tíma.  Mikilvægt er að koma búfjáráburði á tún og akra á "réttum" tíma þ.e. að vori og helst þannig að hann rigni strax niður í jarðveginn.  Ekki þó of mikið, þá skolast áburðarefnin út og af verður mengun í ám og vötnum.  En svo er betra að hafa þurrt veður þegar unnið er í flögum, annars getur verið erfitt að komast um þau.  Einnig geta fræin drukknað ef rignir mikið eftir sáningu.  Já, hann er vandrataður meðalvegurinn í þessum efnum.  Áfram verður haldið tilraunum á heiti og byggi til manneldis.


 
Bein útsending úr fjósinu Ísbarinn Feðgar frá Ísrael Kýrin Birna
Þetta vefsvæði byggir á Eplica