Fréttir Brunnhóll
Senn starfrækt ferðaþjónustu i 25 ár.
Bændur á Brunnhól í framkvæmdahug.
Í haust hófust framkvæmdir við byggingu nýrrar aðstöðu fyrir veitingasölu á Brunnhól, áfast gistiheimilinu og með því mun öll aðstaða batna til mikilla muna. Búið er að steypa upp veggi og unnið er í þaki þessa dagana. Fyrirhugað er að opna nýjan veitingasal um miðjan maí en um þær mundir hefur ferðaþjónusta á Brunnhól verið starfrækt í 25 ár en fyrsti gesturinn, Japani sem ferðaðist fótgangandi umhverfis Ísland, gisti á Brunnhól 13. maí 1986. Síðan þá hefur öll aðstaða tekið miklum breytingum og eftirspurn gesta sömuleiðis. Bókanir fyrir næsta ár streyma inn og lofa góðu sumri. Á Brunnhól gista einkum ferðamenn sem ferðast á eigin vegum, eru oftast fyrirfram bókaðir og hafa leigt sér bílaleigubíl.
![[Málverkasýning Elísabetar Þorsteinsdóttur]](/media/auglysingar/MalverkasyningHnappur.jpg)
![[Barnastarf Menningarmiðstöðvar]](/media/auglysingar/BarnastarfHnappur.jpg)
![[Upplýsingamiðstöð]](/media/auglysingar/infoCenter.jpg)
![[Gönguleiðir í Ríki Vatnajökuls]](/media/auglysingar/GonguferdirHnappur.jpg)
![[Mennning og söfn]](/media/auglysingar/hnappursyningar.jpg)
![[Afþreying]](/media/auglysingar/SundlaugHnappur.jpg)


