Staðsetning
Við jaðar Vatnajökulsþjóðgarðs, stærsta þjóðgarðs í Evrópu
Ferðaþjónusta bænda á Brunnhóli er gisti- og veitingastaður á Suð-Austurlandi, með einstaka jöklasýn. Frá Brunnhól er mjög víðsýnt og Vatnajökulsþjóðgarður, stærsti þjóðgarður í Evrópu, er aðeins í 6 km fjarlægð frá bænum. Brunnhóll er við þjóðveg 1, (aðeins 300 m sunnan þjóðvegar). Um 30 km til austurs er í næsta þéttbýli, Höfn í Hornafirði og 50 km vestar er Jökulsárlón.
Stórir ísjakar fljóta á lóninu og boðið er upp á siglingu innan um þá. Stórbrotin, óblíð náttúra og sú menning sem hún skóp er undirstaða blómlegrar ferðaþjónustu og mannlífs á Suðausturlandi, í Ríki Vatnajökuls. Hér er kort af staðsetningu
Milli Brunnhóls og Reykjavíkur eru u.þ.b. 420 km. Vegurinn er að mestu á láglendi ef undan er skilinn kaflinn yfir Hellisheiði og greiðfært er flesta daga ársins.


![[Málverkasýning Elísabetar Þorsteinsdóttur]](/media/auglysingar/MalverkasyningHnappur.jpg)
![[Barnastarf Menningarmiðstöðvar]](/media/auglysingar/BarnastarfHnappur.jpg)
![[Upplýsingamiðstöð]](/media/auglysingar/infoCenter.jpg)
![[Gönguleiðir í Ríki Vatnajökuls]](/media/auglysingar/GonguferdirHnappur.jpg)
![[Mennning og söfn]](/media/auglysingar/hnappursyningar.jpg)
![[Afþreying]](/media/auglysingar/SundlaugHnappur.jpg)



