Um okkur
Barnabarn
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

Fjölskyldurnar á Brunnhóli og í Árbæ

 

Gestgjafar á Brunnhóli eru Sigurlaug Gissurardóttir og Jón Kristinn Jónsson. Þau eru bæði fædd og uppalin í Vestur Skaftafellssýslu. 

Synir Sigurlaugar og Jóns Kristins eru Ari Þór (1971), Gissur (1976), Sæmundur Jón (1982), og Loftur (1986).  Þeir tóku eftir því sem aldur og kraftar leyfðu virkan þátt í búrekstrinum  með foreldrum sínum enda verkefnin næg.

Sæmundur Jón og kona hans Anne Manly Thomsen tóku við rekstri kúabúsins um áramótin 2004/05.  Börn þeirra eru Líney Sif (2004),  Jakob Jón (2006) og Daney Dís (2009).  Þau búa í Árbæ.

Ari Þór býr á Akureyri og er kona hans Sunna Guðmundsdóttir, grunnskólakennari.   Ari er bílstjóri hjá Flytjanda.  Börn þeirra eru Atli Rúnar (1999), Ragnheiður Inga (2001) og Margrét María (2006)

Gissur býr á Selfossi og sambýliskona hans er Hafdís Jóna Guðmundsdóttir, skrifstofumaður. Gissur er grunnskólakennari.  Börn þeirra eru Íris Embla (2003) og Logi Freyr (2006)

Loftur er nýfluttur úr foreldrahúsum og býr á Akureyri.  Hann er starfsmaður í nýrri aflþynnuverksmiðju þar í bæ, en áður hafði hann m.a. starfað í Bræðslunni á Höfn og hjá Rósaberg.  Vélar og tæki eru helsta áhugamál Lofts og þær eru margar stundirnar sem hann hefur tekið til hendinni við viðgerðir og fleira í bústörfunum í Árbæ.

Barnabörnin eru farin að koma í sveitina til afa og ömmu og kannski eiga þau eftir að verða starfsmenn við ferðaþjónustuna. 

 

 

 


 
Jón Kristinn og Sigurlaug Perla og Tító Hestastelpa Brunnholl_Mynd2
Þetta vefsvæði byggir á Eplica