Sjálfbærnistefna
Brunnhóll á Mýrum
Gullkorn
Ferðaþjónusta bænda á Brunnhóli er gisti- og veitingastaður með einstaka jöklasýn og Vatnajökulsþjóðgarður er aðeins í 6 km fjarlægð frá bænum. Um 30 km eru í næsta þéttbýli, Höfn i Hornafirði. Stórbrotin, óblíð náttúra og sú menning sem hún skóp er undirstaða blómlegrar ferðaþjónustu og mannlífs í Ríki Vatnajökuls.
Ferðaþjónusta bænda á Brunnhóli er fjölskylduvænn gististaður þar sem áhersla er lögð á persónulega þjónustu. Boðið er upp á gistingu fyrir rúmlega 40 gesti og eru flest herbergi með baði. Auk þess er boðið er upp á morgunverð og kvöldverð. Á nágrannabýlinu Árbæ býr yngri kynslóð fjölskyldunnar með kýr, hesta, hunda og ketti. Með góðri samvinnu fjölskyldunnar geta gestir fengið innsýn í hefðbundna búskaparhætti, daglegt líf fjölskyldu í sveit og fræðslu um nánasta umhverfi.
Ferðaþjónusta bænda á Brunnhóli vinnur í anda Staðardagsskrár 21. Áhersla er lögð á gæðaþjónustu og virðingu fyrir umhverfinu. Á þann hátt mun Brunnhóll verða eitt af fyrirtækjum á Íslandi sem vinnur að sjálfbærri þróun með hagsmuni núverandi og komandi kynslóða að leiðarljósi.
Fjölskyldan á Brunnhól og starfsfólk þeirra munu því:
- leggja rækt við störf fyrri kynslóða jafnhliða því sem vörðuð er leiðin til framtíðar
- vinna að því að halda nánasta umhverfi hreinu og aðlaðandi,
- draga úr mengun og verðmætasóun með endurnýtingu, endurvinnslu, orkusparnaði og notkun á umhverfisvænum efnum og tryggja að fráveitur hafi ekki spillandi áhrif á umhverfi
- stuðla að verndun en jafnframt sýnileika menningar- og náttúruminja
- kaupa fremur íslenskar vörur og þjónustu úr heimabyggð ef það er í boði, uppfyllir jafnframt kröfur um gæði og eru á samkeppnishæfu verði.
- veita hæfum einstaklingum úr heimabyggð forgang í störf eða fólki frá svæðum þar sem atvinnuleysi ríkir
- leita sífellt eftir frekari fræðslu um umhverfismál og miðla þeim upplýsingum til starfsfólks. Hvetja jafnframt gesti og birgja til að taka þátt í að vernda umhverfið með okkur
- styrkja samstarf við sveitarfélagið, önnur fyrirtæki og íbúa á svæðinu
- uppfylla öll ákvæði laga og reglugerða um umhverfismál sem eiga við starfssemina
- vinna stöðugt að úrbótum í rekstri og þjónustu með það í huga að bæta frammistöðu sína í umhverfismálum og fá árlega umhverfisvottun frá Green Globe.
![[Málverkasýning Elísabetar Þorsteinsdóttur]](/media/auglysingar/MalverkasyningHnappur.jpg)
![[Barnastarf Menningarmiðstöðvar]](/media/auglysingar/BarnastarfHnappur.jpg)
![[Upplýsingamiðstöð]](/media/auglysingar/infoCenter.jpg)
![[Gönguleiðir í Ríki Vatnajökuls]](/media/auglysingar/GonguferdirHnappur.jpg)
![[Mennning og söfn]](/media/auglysingar/hnappursyningar.jpg)
![[Afþreying]](/media/auglysingar/SundlaugHnappur.jpg)


