Veitingar
Boðið er upp á hlaðborð með heimilislegum veitingum
-
Morgunverðarhlaðborð alla daga milli kl. 7.30/8.00 - 9.30/10.00
-
Kvöldverðarhlaðborð í boði frá 1. júní – 31. ágúst, milli kl. 18.30 – 20.30
-
Hægt að panta máltíðir utan þess tíma.
-
Nestispakkar í boði. Panta þarf að kvöldi.
-
Jöklaís, heimalagaður ís, beint frá býli.
-
Vatn, gosdrykkir, léttvín, bjór og fleira selt í afgreiðslu. T
-
Tekið við VISA og MASTER kortum. Einnig debetkortum.
Sérstök áhersla er lögð á fjölbreytni þannig að allir geti fundið eitthvað við hæfi og að gestir standi saddir upp frá borðum. Leitast er við að bjóða upp á afurðir sem framleiddar eru á býlinu eða í næsta nágrenni, hvort heldur eru mjólkurafurðir, kjöt, grænmeti eða fiskur. Lögð er áhersla á að hafa ávallt heimabakað brauð á boðstólum og nýbakaðar skonsur og rabbarbarasulta eru einn af föstum liðum á morgunverðarborðinu.
Nýr veitingasalur var tekinn í notkun 2011 og úr honum er afar víðsýnt m.a. til jöklanna og til Hafnar og Nesjafjalla. Salurinn tekur um 65 manns í sæti. Opið er út á verönd þar sem hægt er að njóta stórbrotinnar náttúru og útsýnis um leið og hvers konar veitinga. Hlaðborð er í boði alla daga frá 1. júní – 31. ágúst. Utan þess tíma biðjum við gesti að panta kvöldverð fyrirfram
Hér er hægt að sjá myndir úr veitingasal
![[Málverkasýning Elísabetar Þorsteinsdóttur]](/media/auglysingar/MalverkasyningHnappur.jpg)
![[Barnastarf Menningarmiðstöðvar]](/media/auglysingar/BarnastarfHnappur.jpg)
![[Upplýsingamiðstöð]](/media/auglysingar/infoCenter.jpg)
![[Gönguleiðir í Ríki Vatnajökuls]](/media/auglysingar/GonguferdirHnappur.jpg)
![[Mennning og söfn]](/media/auglysingar/hnappursyningar.jpg)
![[Afþreying]](/media/auglysingar/SundlaugHnappur.jpg)



