Beint í leiðarkerfi vefsins.
Á farfuglaheimilinu Vagnsstöðum eru í boði 7 herbergi, öll með handlaug. Góð eldunaraðstaða er fyrir gesti og sameiginlegt rými og einnig eru 3 smáhýsi. Á Vagnsstöðum er einnig tjaldstæði með góðri hreinlætisaðstöðu. Farfuglaheimilið er í fallegu umhverfi, stutt bæði til fjalla og niður að strönd þar sem er mikið fuglalíf. Góðar gönguleiðir eru til fjalla og hægt er að kaupa eða leigja afnot af gönguleiðakorti, ásamt því að seld eru þar veiðileyfi. Farfuglaheimilið er vel staðsett fyrir þá sem vilja nýta sér afþreyingu við og á Vatnajökli, og þaðan er boðið er upp á 4-5 klst. jeppa- og vélsleðaferðir á jökulinn með Jöklajeppum. Skaftafell 85 km. og Jökulsárlón 30 km.
Við bæinn Lambleiksstaði á Mýrum (30 km vestan við Höfn) eru fjögur ný smáhýsi. Í þremur smáhýsum eru svefnpokapláss fyrir 4 í tvíbreiðri koju. Í einu smáhýsi eru svefnpokapláss fyrir 6 manns, fjögur pláss í tvíbreiðri koju og tvö í svefnsófa.Samtals eru gistipláss fyrir 18 manns í rúmi. Einnig er hægt að fá aukadýnu inní hús.Tjaldstæði liggur norðanvert við bæinn en þaðan er tilkomumikið útsýni til skriðjökla Vatnajökuls og fjallahrings Hornafjarðar.
Lækjarhús bjóða upp á gistingu í notalegum smáhýsum á Hofi í Öræfum. Um svefnpokagistingu er að ræða en einnig er mögulegt að leigja sængur, kodda og rúmföt. Náttúran í nágrenni Lækjarhúsa er í senn stórbrotin og einstök en Öræfasveit státar af ægifögru umhverfi og miklum andstæðum í landslagi. í nágrenninu er að finna nokkrar af helstu náttúruperlum landsins; þjóðgarðinn í Skaftafelli, Öræfajökul, Ingólfshöfða og Jökulsárlón.
Náttból ehf. býður upp á gistingu í 11 smáhýsum sem eru staðsett á tjaldstæðinu á Höfn í Hornafirði. Húsin eru 15,4 fermetrar að stærð og skiptist það í tvö rými. Annars vegar svefnrými með fjórum kojum þar sem er svefnpláss fyrir fjóra til sex gesti og hinsvegar fremra rými þar sem eru borð og stólar auk eldunarhellu, hraðsuðuketils og brauðrist. Lítil verönd er fyrir framan húsin sem snýr á móti síðdegis- og kvöldsól. Rafmagn er í húsunum en hreinlætisaðstaða og rennandi vatn er nýtt sameiginlega með tjaldsvæðinu. Þar eru sturtur, salerni og þvottaaðstaða, sem og leiktæki fyrir börn og aðgangur að interneti.
Í Svínafelli er boðið upp á svefnpokagistingu í 6 smáhýsum
og 6 herbergjum. Í hverju smáhýsi er svefnpláss fyrir fjóra í tveimur tveggja
manna kojum. Vaskur og borðbúnaður fyrir fjóra er í hverju húsi, en auk þess
hafa allir gestir frjálsan aðgang að þjónustuhúsi. Þar er einnig salernisaðstaða og tvær sturtur. Í
Svínafelli er einnig boðið upp á
tjaldsvæði fyrir 100-150 manns og þvottaaðstöðu.
Hringlaga útisundlaug með tveimur heitum pottum er í Svínafelli.
Ríki Vatnajökuls | 780 Hornafirði | info@rikivatnajokuls.is