Jöklaferðir
Svínafellsjökull

Jökullinn

Margvíslegir möguleikar eru á ferðalögum um stærsta jökli Evrópu og upplifun þeirra sem ferðast um hann margvísleg og ræðst af ferðamáta hvers og eins.  Sumum nægir einfaldlega að horfa á jökulinn úr fjarska eða að komast að jökulröndinni og snerta ískalt jökulstálið.  Ferðalög að jöklinum og um hann eru hins vegar aldrei með öllu hættulaus eða fyrir óvana.  Við mælum því með því ferðalangar kynni sér ávallt aðstæður við jökulinn og þegar fara á upp á jöklinn, að slást þá í för með reyndum jöklaförum. 

Við mælum ekki með því að farið sé á eigin vegum upp á Vatnajökul, nema viðkomandi sé vanur ferðum á jökul, hafi kynnt sér allar aðstæður og láti vita um ferðaáætlun.


Jöklaferðir

Svínafellsjökull
Svínafellsjökull
Mynd Ragnar Th. Sigurðsson

Jökullinn

Margvíslegir möguleikar eru á ferðalögum um stærsta jökli Evrópu og upplifun þeirra sem ferðast um hann margvísleg og ræðst af ferðamáta hvers og eins.  Sumum nægir einfaldlega að horfa á jökulinn úr fjarska eða að komast að jökulröndinni og snerta ískalt jökulstálið.  Ferðalög að jöklinum og um hann eru hins vegar aldrei með öllu hættulaus eða fyrir óvana.  Við mælum því með því ferðalangar kynni sér ávallt aðstæður við jökulinn og þegar fara á upp á jöklinn, að slást þá í för með reyndum jöklaförum. 

Við mælum ekki með því að farið sé á eigin vegum upp á Vatnajökul, nema viðkomandi sé vanur ferðum á jökul, hafi kynnt sér allar aðstæður og láti vita um ferðaáætlun.


Fyrirtæki með jöklaferðir - Jöklaferðir

Fjallleidsogumenn

Íslenskir fjallaleiðsögumenn í Skaftafelli

Íslenskir Fjallaleiðsögumenn bjóða upp á ýmiss konar jökla- og fjallgöngur frá Vatnajökulsþjóðgarði í Skaftafelli frá 1. mars til 31. október á hverju ári.  Frá Skaftafelli er farið í jöklagöngur á jökultungu Svínafellsjökuls og fjallgöngur á Hvannadalshnúk, hæsta tind Íslands (2110 m), og Hrútsfjallstinda (1875m).  Lágmarksaldur fyrir jöklagöngur er 10 ár.

Sjá meira

Jöklajeppar

Jöklajeppar ehf

Hjá Jöklajeppum- Ís og Ævintýri eru í boði fjölbreyttar jeppa- og sleðaferðir um Vatnajökul. Vinsælast er að fara styttri sleðaferð á Vatnajökli  en þá er farið um 4,5 km inná jökulinn. Þar að auki skipuleggja Jöklajeppar göngu- og skíðaferðir um jökulinn. Hægt er að panta ferðir allt árið um kring, en daglegar ferðir eru frá 1. maí  til 10. september kl. 09.30 og 14.00. 

Sjá meira

Glacier-Guides

Jöklamenn ehf

Jöklamenn (Glacier Guides) er fyrirtæki sem býður upp á fagmannlega fjallaleiðsögn og leggur metnað sinn í að bjóða upp á fjölbreytt úrval jökla- og fjallaferða auk annarra ævintýra. Söluskrifstofan er staðsett við Gestastofuna í Skaftafelli, með útsýni yfir Öræfajökul sem veitir okkur innblástur og starfsorku.

Sjá meira

Hofsnes LogoMynd1

Öræfaferðir

Fjölskyldufyrirtækið Öræfaferðir á Hofsnesi býður upp á fjölbreytta afþreyingu í Öræfasveit og nágrenni allt árið um kring. Á sumrin eru í boði skemmtilegar sögu og fuglaskoðunarferðir í Ingólfshöfða. Einnig eru Öræfaferðir með byrjendavænar kajakaferðir á Hofsnesi, auk ýmiskonar fjallamennsku, skíða og klifurferða í ríki Vatnajökuls, þar á meðal göngur á Hvannadalshnúk.

Sjá meira


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica