Fréttir

Upplýstir ísjakar baðaðir í litum og birtu

26.08.2011

flugeldar
Flugeldasýning
Flugeldasýning á Jökulsárlóni

Flugeldasýningin á Jökulsárlóni verður laugardagskvöldið 27. ágúst klukkan 23. Flugeldasýningin er árlegur viðburður og er þetta í tólfta sinn sem sýningin er haldin. Fjöldi áhorfenda hefur farið stigvaxandi með ári hverju og í fyrra komu 1300 manns til að njóta sýningarinnar.

Uppruna flugeldasýningarinnar má rekja til uppskeruhátíðar starfsfólks við Jökulsárlón, og smám saman vatt hún upp á sig. Undirbúningur fyrir sýninguna hefst fyrr um daginn þegar menn á gúmmíbáti fara um lónið og raða 150 friðarkertum á ísjaka. Um kvöldið er kveikt á kertunum og síðan skotið upp flugeldum á nokkrum stöðum á lóninu. Upplýstir ísjakarnir eru baðaðir í litum og birtu frá stórkostlegri flugeldasýningu í magnaðri umgjörð náttúrunnar sem skapar einstaka upplifun fyrir áhorfendur.

Ferðaþjónustan Jökulsárlóni og Björgunarfélag Hornafjarðar standa að sýningunni í samstarfi við Ríki Vatnajökuls. Aðgangseyrir er 1000 krónur og frítt inn fyrir 12 ára og yngri.
Allur ágóði rennur til Björgunarfélags Hornafjarðar.

Flugeldasýningin á Facebook.

Senda grein

Fréttir

Ljósmyndakeppni Á Hvannadalshrygg

Úrslit í ljósmyndasamkeppninni Myndaðu Ríki Vatnajökuls - 17.9.2011 Fréttir

Yfir 200 myndir bárust í ljósmyndasamkeppninni Myndaðu Ríki Vatnajökuls og var úr vöndu að ráða fyrir dómnefnd.

Lesa meira
 
flugeldar

Upplýstir ísjakar baðaðir í litum og birtu - 26.8.2011 Fréttir

Flugeldasýningin á Jökulsárlóni verður laugardagskvöldið 27. ágúst klukkan 23. Flugeldasýningin er árlegur viðburður og er þetta í tólfta sinn sem sýningin er haldin. Fjöldi áhorfenda hefur farið stigvaxandi með ári hverju og í fyrra komu 1300 manns til að njóta sýningarinnar.

Lesa meira
 
Sundlaugin/ Swimmingpool

Ferðaþjónustan á Suðurlandi bjartsýn á framhaldið - 26.5.2011 Fréttir

Ferðaþjónustuaðilar á Suðurlandi eru bjartsýnir um framhaldið þrátt fyrir erfiðleika undanfarinna daga, enda hefur dregið verulega úr gosinu og merki eru um að því sé jafnvel lokið.

Lesa meira
 
Hiking

Ólíklegt að gosið hafi sömu áhrif og gosið í Eyjafjallajökli í fyrra - 23.5.2011 Fréttir

Markaðsstofa Suðurlands hvetur ferðamenn til að bíða og sjá áhrif gossins áður en ferðatilhögunum er breytt Lesa meira
 
Samningur undirritaður

Samningur undirritaður við sveitarfélagið á fyrsta fundi nýrrar stjórnar - 4.5.2011 Fréttir

Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar Ríkis Vatnajökuls ehf 3. maí var undirritaður nýr samningur um stuðning frá Sveitarfélaginu Hornafirði til næstu fjögurra ára, líkt og verið hefur síðustu fjögur ár frá stofnun klasans.

Lesa meira
 
Ríki Vatnajökuls - Ferðaþjónusta

Suðurland já takk í Ráðhúsinu í Reykjavík - 8.3.2011 Fréttir

Fyrirtæki og stofnanir úr Hornafirði munu vera í Ráðhúsinu í Reykjavík laugardaginn 19. mars næstkomandi að kynna starfsemi sína á Suðurlandssýningu undir yfirskriftinni ,,Suðurland já takk". Lesa meira
 
Heimamarkaður

Allir á Heimamarkaðinn á laugardögum - 16.2.2011 Fréttir

Heimamarkaðurinn hefur opnað á ný í Pakkhúsinu og er stefnan að hafa hann opinn alla laugardaga milli 13 og 16 til sumars. Lesa meira
 
Hreindýr

Suðurland já takk - 9.2.2011 Fréttir

Landshlutasýningin „Suðurland já takk“ verður haldin í Ráðhúsinu í Reykjavík dagana 18. – 21. mars og gefst fyrirtækjum og stofnunum í Hornafirði kostur á að kynna starfsemi sína þar.

Lesa meira
 
Sigríður Dögg Guðmundsdóttur

Nýr framkvæmdastjóri Ríki Vatnajökuls ehf - 30.11.2010 Fréttir

Fyrir nokkru var auglýst starf framkvæmdastjóra Ríki Vatnajökuls ehf.  Umsækjendur um starfið voru 13 og eftir að stjórn hafði farið yfir umsóknir,  voru tveir aðilar teknir í frekara viðtal, sem leiddi til þess að gengið var til samninga við Sigríði Dögg Guðmundsdóttur. Lesa meira
 
Flugeldasýning á Jökulsárlóni

Flugeldasýningin í Jökulsárlóni verður laugardaginn 28.ágúst. - 30.7.2010 Fréttir

Í fyrra mættu yfir eittþúsund og fimmtíu manns á flugeldasýninguna, nú verður hún færð aftur um tvær vikur. Lesa meira
 
Verðlaunahafar með bikara og bros á vör

Vel heppnað víðavangshlaup í Skaftafelli - 25.5.2010 Fréttir

Skeiðarárhlaup fór fram um helgina og tóku 20 keppendur þátt í þessu fyrsta víðavangshlaupi í Skaftafelli. Hlaupið var samstarfsverkefni  Ríkis Vatnajökuls, ungmennafélagsins Sindra og Vatnajökulsþjóðgarðs. Lesa meira
 
Skeiðarárhlaup 2010

Skeiðarárhlaup um Hvítasunnuna - 19.5.2010 Fréttir

Um hvítasunnuhelgina, nánar tiltekið laugardaginn 22. maí, verður efnt til víðavangshlaups í Skaftafelli. Hlaupnar verða tvær vegalengdir, 16 km og 8 km. Einnig gefst krökkum 12 ára og yngri tækifæri til að hlaupa lokasprett styttri leiðarinnar og taka þannig þátt í því sem þeir eldri eru að gera.

Lesa meira
 
Hreindýr

Málþing um hreindýr - 31.3.2010 Fréttir

Í dag hefst málþing um hreindýr í tengslum við Vetrarhátíð í Ríki Vatnajökuls, það er öllum opið og er fólki velkomið að sitja hluta þess.

Lesa meira
 
Heimamarkaður

Heimamarkaður í Pakkhúsinu á morgun laugardag - 19.3.2010 Fréttir

Á morgun laugardag verður markaður í Pakkhúsinu að venju, á boðstólnum verður fiskur, reyktur makríll, nautakjöt, grænmeti og úrval af fersku svínakjöti, kótelettum og fleira góðgæti. Lesa meira
 
Úti-ljósmyndasýning á Jökulsárlón

Úti-ljósmyndasýning opnar á Jökulsárlóni - 6.3.2010 Fréttir

Opnun úti-ljósmyndasýningar á Jökulsárlóni á Breiðamerkursandi á morgun sunnudag kl:14:00. Það er hinn eini sanni hirðljósmyndari Ríki Vatnajökuls, Ragnars Th. Sigurðsson sem opnar sýninguna ,,Vatnajökull´´ sem er hluti af dagskrá Vetrarhátíðar í Ríki Vatnajökuls. Lesa meira
 
Tökur fyrir kynningarmyndband

Unnið að kynningarmyndbandi um Ríki Vatnajökuls - 1.3.2010 Fréttir

Nú hefur verið tekin ákvörðun um að gera kynningarmyndband um okkar fallega hérað, mikil áhersla verður á náttúruna, fjöllin og jökulinn. Lesa meira
 
WOW_Ísklifur

Ísklifurfestival í Öræfum um helgina, Vetrarhátíð í ríki Vatnajökuls - 26.2.2010 Fréttir

Frá árinu 1998 hefur Íslenski alpaklúbburinn (Ísalp) staðið fyrir árlegri samkomu, svokölluðu ísfestivali, þar sem ísklifrarar landsins hittast og klífa frosna fossa og lækjarsprænur. Lesa meira
 
Þéttsetið

Vetrarhátíð í Ríki Vatnajökuls - 24.2.2010 Fréttir

Nú fer af stað í fyrsta skipti Vetrarhátíð í Ríki Vatnajökuls. Þema hátíðarinnar er ferðalag og  hefst með Ísklifurhátíð ÍSALP í Öræfunum nk. föstudag og stendur í tvo daga. Viðburðir verða í boði frá 26. febrúar og fram yfir páska. Hefð er komin á suma viðburðina eins og Norðurljósablús.

Lesa meira
 
Hvalur og Hali

Gistiheimilið á Hala og Þórbergssetur eru opin allt árið - 18.1.2010 Fréttir

Vetrarferðamennska í Ríki Vatnajökuls er eitthvað sem er heillandi viðfangsefni að fást við.

Lesa meira
 
Heimamarkaðurinn í Pakkhúsinu

Heimamarkaðurinn byrjar að nýju laugardaginn 23. janúar - 15.1.2010 Fréttir

Hinn vinsæli heimamarkaður byrjar að nýju  laugardaginn 23. janúar n.k.  og ef viðtökurnar verða jafn góðar og á síðasta ár i þá er stefnt á að hann verði í allan vetur á laugardögum frá kl. 13 til 16.

Lesa meira
 
Gjafaaskja

Jólagjafaöskjur með afurðum úr ríki Vatnajökuls - 17.12.2009 Fréttir

Nú hafa afurðaframleiðendur sett á markað Jólaöskjur með afurðum svæðisins, þetta eru vörur sem henta í jólamatinn sem í jólaboðin.

Lesa meira
 
Fegurð

Á döfinni hjá Markaðsstofu Suðurlands - 17.12.2009 Fréttir

Í september s.l. gaf Markaðsstofa Suðurlands út sameiginlegan landshlutabækling  þar sem öll ferðaþjónustufyrirtæki eru grunnskráð, en það hafði ekki verið gert áður.

Lesa meira
 
Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu 2009

Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu - 21.11.2009 Fréttir

Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu voru afhent í 15. sinn 19. nóvember. Þau komu í hlut Íslenskra Fjallaleiðsögumanna fyrir markvissa umhverfisstefnu, með það að leiðarljósi að öll ferðamennska á vegum fyrirtækisins sé sjálfbær. Einnig fyrir áralanga baráttu fyrir verndun viðkvæmrar náttúru norðurslóða með hagsmuni næstu kynslóða í huga.  Íslenskir fjallaleiðsögumenn hafa starfað í Öræfunum síðastliðin 15 ár.

Lesa meira
 
Haustþing Ríkis Vatnajökuls

Velheppnað haustþing Ríkis Vatnajökuls - 29.10.2009 Fréttir

Ferðaþjónustu, matvæla og menningarklasinn Ríki Vatnajökuls í samstarfi við Háskólasetur á Hornafirði stóð fyrir opnu málþingi í Nýheimum á Höfn 21.-22. október 2009. Umfjöllunarefnið var umhverfis- og skipulagsmál í ferðaþjónustu á Íslandi og var málþingið opið öllum.

Lesa meira
 
Hoffellsjökull

Haustþing Ríkis Vatnajökuls - 16.10.2009 Fréttir

Ákveðið hefur verið að framlengja skráningarfrest fram á sunnudag og því er lokadagur skráningar er sunnudagurinn 18. október 2009.

Ekkert þátttökugjald er á málþinginu

Lesa meira
 
Öræfajökull

Haustþing Ríkis Vatnajökuls - 12.10.2009 Fréttir

Ferðaþjónustu, matvæla og menningarklasinn Ríki Vatnajökuls í samstarfi við Háskólasetur á Hornafirði mun standa fyrir opnu málþingi í Nýheimum á Höfn 21.-22. október 2009.

Lesa meira
 
Í Skaftafelli

Fréttir frá Skaftafelli - 1.7.2009 Fréttir

Nú er að ljúka sýningu Fuglaverndar á fuglaljósmyndum sem hefur staðið yfir í Skaftafellsstofu frá 23. maí.

Lesa meira
 
Hljómsveitin Krauka

Fjölbreytt dagskrá í Skaftafelli í júní - 2.6.2009 Fréttir

Eins og undanfarin ár mun Hálfdán Björnsson leiða blómaskoðunarferð í Skaftafelli á degi hinna villtu blóma.

Lesa meira
 
Séð til lands úr Papey

Söguhelgi á Suðausturlandi – Opnunarhátíð Söguslóðar á Suðausturlandi - 1.6.2009 Fréttir

Söguslóð á Suðausturlandi verður opnuð formlega helgina 6. og 7. júní næstkomandi. Um er að ræða verkefni sem unnið hefur verið í samvinnu fjölmargra aðila á svæðinu frá Djúpavogi að Skaftafelli.

Lesa meira
 
Álftir

Uppbygging fuglaferðaþjónustu á Suðausturlandi - 20.5.2009 Fréttir

Í vetur hefur hópur aðila frá Djúpavogshreppi og úr Sveitarfélaginu Hornafirði hist og markað stefnu í uppbyggingu fuglaferðaþjónustu.

Lesa meira
 
Laufey með dótturdótturina

Hér drýpur smjör af hverju strái - 18.5.2009 Maí

Þetta er besta vorið í ferðaþjónustunni frá því við byrjuðum.

Lesa meira
 
Vorið í ríki Vatnajökuls

Vorið í Suðursveit nú um helgina - 16.5.2009 Fréttir

Ferðaþjónustuaðilar í Suðursveit munu bjóða upp á fjölbreytta dagskrá nú um helgina

Lesa meira
 
Karri

Rjúpnatalningar í Skaftafelli - 13.5.2009 Fréttir

Rjúpur hafa verið taldar í Skaftafelli á hverju vori frá árinu 1999

Lesa meira
 
Vorið í ríki Vatnajökuls

Vorið í Suðursveit - 12.5.2009 Fréttir

Ferðaþjónustuaðilar í Suðursveit  munu bjóða upp á  fjölbreytta dagskrá helgina 16. - 17. maí þar sem þjónusta þeirra verður kynnt fyrir heimafólki. 

Lesa meira
 
Fjallaklifur

Fjallamenning í Ríki Vatnajökuls - 29.3.2009 Mars

Nú er lagt kapp á að kynna þá fjölbreyttu afþreyingu sem eru í boði yfir vetrarmánuðina hér í Sveitarfélaginu Hornafirði og skapa enn meiri fjölbreytni og eru margir sem þar koma að í samstarfi við Ríki Vatnajökuls. 

Lesa meira
 
Matthías á hundasleða

Metaðsókn í jöklaferðir - 10.2.2009 Fréttir

Það hefur aldrei verið eins mikið að gera í þessum ferðum.

Lesa meira
 
Leiðsögumaður að störfum

Leiðsögunámskeið í ríki Vatnajökuls - 10.2.2009 Fréttir

Menntun leiðsögumanna er mikilvægur þáttur í sýna fram á færni okkar í að taka á móti ferðamönnum og skiptir máli í markaðssetningu svæðisins segir Rósa Björk framkvæmdastjóri Ríki Vatnajökuls

Lesa meira
 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell)

Vatnavinir með kynningu í Nýheimum - 31.1.2009 Fréttir

Vatnavinir eru félagsskapur fólks sem vilja vekja athygli á íslenska vatninu sem auðlind hvort sem það er kalt eða heitt.

Lesa meira
 
Smyrlabjorgvidurk

Smyrlabjörg og Brunnhóll fá viðurkenningu - 13.1.2009 Fréttir

Á uppskeruhátíð Ferðaþjónustu bænda í nóvember síðastliðnum kynnti Bjarni framkvæmdastjóri Better Buisness helstu niðurstöður frá sumrinu en dómarar eru huldugestir á gististöðunum.

Lesa meira
 
Vínberjarækt

Er vínberjarækt kannski tækifæri til nýsköpunar? - 13.11.2008 Fréttir

Þessari spurningu veltu göngugarpar strandgöngunnar fyrir sér síðastliðin laugardag þegar Brynja í Grænahrauni bauð göngufólkinu upp á heimaræktuð vínber. Vínberin brögðuðust afar vel og að sögn Brynju eru þau auðveld í ræktun og árleg uppskera um 20 kg. Veður var gott og þátttaka í ferðinni frábær, yfir 30 manns. Lagt var af stað frá fjörunni fyrir neðan Dynjanda og gengið meðfram ströndinni að Þinganesi. Þar tóku Þinganesmenn á móti okkur og gengu með okkur í gegnum Þinganeslandið. Þeir sýndu okkur meðal annars Gvendarbrunn, Gálgaklett og hvar fyrsti bærinn í Þinganesi stóð. Brynja í Grænahrauni fylgdi okkur yfir lendur Grænahrauns. Suðaustur af bænum er hraun sem heitir Páskadagshraun. Lesa meira
 
Verðlaunaafhending Nýheimar

Hótel Höfn og Nýheimar hlutu viðurkenningar - 13.11.2008 Fréttir

Á ráðstefnunni um atvinnulíf og nýsköpun við lendur Vatnajökuls síðustu helgi var haldin Uppskeruhátíð klasans að Smyrlabjörgum á föstudagskvöldinu sem að Ríki Vatnajökuls og Ferðamálafélag Austur- Skaftafellssýslu stóð fyrir. Veittar voru viðurkenningar annars vegar frá Ríki Vatnajökuls og FASK, Vitinn -öðrum leiðarljós, og hins vegar frá Ferðamálasamtökum Íslands. Fyrir valinu hjá þeim fyrrnefndu varð Hótel Höfn sem hefur verið mikil kjölfesta í ferðaþjónustu á svæðinu. Vitinn - öðrum leiðarljós er veittur fyrirtækjum eða einstaklingum sem með einum eða örðum hætti hafa verið öðrum aðilum í greininni leiðarljós. Var það samdóma álit að eigendur Hótels Hafnar séu verðugir handhafar Vitans. Lesa meira
 
Rósa og Hjörleifur

Hjörleifi Guttormssyni veitt heiðursviðurkenning - 12.11.2008 Fréttir

Á nýafstaðinni ráðstefnu um atvinnulíf og nýsköpun við lendur Vatnajökulsþjóðgarðs sem haldin var hér í sveitarfélaginu var Hjörleifi Guttormssyni veitt heiðursviðurkenning frá Ríki Vatnajökuls fyrir aðkomu að stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs en viðurkenningin var þakklætisvottur fyrir að færa ferðaþjónustunni það tækifæri sem felst í því að hafa stærsta þjóðgarð Evrópu við bæjardyrnar. Svo er bara að sjá hvernig við getum nýtt okkur það tækifæri en það var einmitt efni ráðstefnunnar í hnotskurn segir Rósa Björk framkvæmdastjóri Ríki Vatnajökuls. Lesa meira
 
Sívar og Frikki fyrir utan Bestfisk

Saltfisksmiðjan - 5.8.2008 Fréttir

Ferðamenn á leið um Höfn eiga þess kost að heimsækja Saltfisksmiðju sem humar-og saltfiskfyrirtækið Bestfiskur starfrækir. Þar fá gestir að sjá hvernig sólþurrkaður saltfiskur var og er framleiddur ásamt því að fræðast um sögu saltfiskframleiðslu undir leiðsögn starfsmanns fyrirtækisins. Skoðun tekur um 30 mínútur einnig gefst gestunum kostur á að kaupa minjagripi og framleiðsluvörur Bestfisks svo sem sólþurrkaðan saltfisk (líka í gjafapakkningum), humar og ferskfisk. Sívar Árni Scheving framkvæmdastjóri Bestfisks segir að aðsókn hafi veri mjög góð síðan opnað var í byrjun júlí og það sé gaman að finna hvað útlendingarnir eru áhugasamir að skoða allt hér; sérstaklega eru það Spánverjar og Ítalir sem vilja vita allt sem við kemur saltfiskinum. Lesa meira
 
Matta í Birthday pillar.jpg

Hnappavallahamrar - 29.7.2008 Fréttir

Hnappavallahamrar í Öræfum eru stærsta og vinsælasta klettaklifursvæði á Íslandi þó svo að ekki sé mörgum heimamönnum kunnugt um það á Hornafirði. Örnefnið Hnappavallahamrar á í raun aðeins við um klettabeltið sem nær frá Sandskarði við Salthöfða í vestri og austur til Stekkatúnshamra en þeir eru lágt klettabelti sem liggur norður frá Hádegishamri í átt að Hnappavallabæjum. Öræfaferðir á Hofsnesi hafa notað klettaklifursvæðið töluvert og farið þangað með skólakrakka í skólaferðalögum í klettaklifur og sig, auk þess sem stundum hafa aðstæður verið til að halda ísklifurnámskeið í fossum í hömrunum sem eru í klakaböndum yfir vetrartímann. Austan undir Miðskjóli er tjaldstæði í skjóli hamranna á fallegum stað. Þó er þetta ekki skipulagt tjaldstæði en landeigendur á Hnappavöllum hafa leyft klettaklifursáhugafólki að tjalda þarna án endurgjalds svo framalega sem að þeir gangi vel um svæðið sem þau gera. Lesa meira
 
Tónleikar á Ólafsmessu

Tónleikar í Kálfafellsstaðarkirkju - 28.7.2008 Fréttir

Vakin er athygli á hátíðarstund og tónleikum í Kálfafellsstaðarkirkju þriðjudaginn 29. júlí klukkan 14:00. Rut Ingólfssdóttir fiðluleikari og Richard Simm píanóleikari koma í heimsókn og á efnisskránni eru þekkt lög, íslensk og erlend. Kálfafellsstaðarkirkja er mjög gott tónlistarhús og því eru sýslubúar og gestir hvattir til að mæta og njóta tónlistar, fræðslu og helgistundar í Suðursveit. Flutt verða m.a. lög eftir Pál Ísólfsson, Sveinbjörn Sveinbjörnsson, Inga T Lárusson og Sigvalda Kaldalóns. Gönguferð að Völvuleiði undir Hellaklettum og heimsókn í Þórbergssetur verða síðan í lok athafnarinnar. Lesa meira
 
Kálfafellsstaðarkirkja

Ólafsmessa í Kálfafellsstaðarkirkju - 25.7.2008 Fréttir

Næstkomandi þriðjudag 29. júlí kl 14:00 verður hátíðarstund og tónleikar í Kálfafellsstaðarkirkju. Markmiðið með þessum viðburði er margþætt, bæði það að efla menningarlíf í dreifbýli yfir ferðamannatímann, en einnig að vekja athygli á kirkjum héraðsins sem menningarhúsum og áhugaverðum ferðamannastöðum. Einnig er verið að gera sögu héraðsins sýnilegri með því að rifja upp gamlar sögur og sagnir og halda þannig við þekkingu á alþýðufróðleik fyrri alda. Verkefnið er samstarfsverkefni Þórbergsseturs og Kálfafellstaðarkirkju styrkt af Menningarráði Austurlands. Lesa meira
 
Rósa Björk Halldórsdóttir

Áætlun sérleyfisbifreiða milli Egilsstaðar og Hafnar hefur verið breytt - 18.7.2008 Fréttir

Nú geta Ferðaþjónustuaðilar á Hornafirði og þeir ferðamenn sem ferðast með rútu milli norðurlands og Hafnar tekið gleði sína á ný því Þingvallaleið sem er með áætlunarrútuna Höfn-Egilsstaðir hefur breytt ferðaáætlun á þessari leið í samræmi við þá áætlun sem verið hefur í gildi í mörg ár. Forsaga þessa máls var sú að í vor varð breyting á tímaáætlun á rútuferðum Þingvallaleiðar á leiðinni Egilsstaðir-Höfn og kom þá upp sú staða að ferðamenn sem komu frá norðurlandi til Egilsstaða komust ekki samdægurs með rútu til Hafnar. Ferðamenn höfðu af þessu veruleg óþægindi og aukakostnað. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica