Fréttir
Fjölbreytt dagskrá í Skaftafelli í júní
Eins og undanfarin ár mun Hálfdán Björnsson leiða blómaskoðunarferð í Skaftafelli á degi hinna villtu blóma. Það eru Flóruvinir sem standa fyrir þessum gönguferðum. Lagt verður af stað í gönguna frá Skaftafellsstofu kl 13:00, sunnudaginn 14. júní. Allir velkomnir.
Hinn 16. júní kl. 20:00 verður mjög gamaldags uppákoma í Skaftafelli, þegar víkingahljómsveitin Krauka heimsækir okkur. Meðlimir hljómsveitarinnar spila af fingrum fram á hljóðfæri sem eru smíðuð eftir hljóðfærum frá víkingatímanum í bland við nútímalegri hljóðfæri. Það er upplagt að tengja víkingatónleikana við skoðun Söguslóðar á suðausturlandi sem opnar formlega helgina 6. -7. júní, og njóta þeirrar fræðslu sem þar er í boði. Hljómsveitin Krauka heldur einnig tónleika í Geitafelli í Nesjum í lok 17. júní dagskrár þar.
Sunnudaginn 21. júní kl. 20:00 fögnum við lengsta degi ársins með því að kveikja varðeld vestast á tjaldsvæðinu í Skaftafelli. Fjölskyldustemning þar sem við syngjum saman við eldinn.
Fjöldi fyrirlestra er fyrirhugaður í Skaftafellsstofu í sumar, ýmist á íslensku eða ensku.
Í júní eru 3 fyrirlestrar á dagskrá, á fimmtudagskvöldum kl. 20:00.
11. júní verður Ármann Guðmundsson með fyrirlestur á íslensku um fornleifauppgröft í Öræfum.
18. og 25. júní heldur jarðfræðingurinn Dave Mc.Garvie fyrirlestra um jarðfræðirannsóknir sínar í nágrenni Skaftafells. Fyrri fyrirlesturinn, hinn 18. júní, kallar hann: Iceland’;s rocks – West and East of Skaftafell og fjallar hann almennt um jarðfræði í nágrenni Skaftafells. Seinni fyrirlesturinn, 25. júní, fjallar um jarðfræði Öræfajökuls, Öræfajökull´s geology en Dave hefur ásamt hópi breskra jarðfræðinga stundað rannsóknir á Öræfajökli til fjölda ára. Fyrirlestrar Mc.Garvies verða á ensku, en byggjast mikið upp á myndum og skýringarmyndum.
Frá 16. júní – 15. ágúst verða í boði daglegar gönguferðir með landvörðum í Skaftafelli. Þá stendur yfir ljósmyndasýning á vegum Fuglaverndar í Skaftafellsstofu til 30. júní, en þar gefur að líta fjöldamargar glæsilegar fuglamyndir.

![[Ferðaupplýsingar]](/media/utgefidefni/Travel.jpg)
![[Fundir og ráðstefnur]](/media/utgefidefni/Conference.jpg)
![[Jöklaferðir]](/media/utgefidefni/GlacierTours.jpg)
![[Menning og viðburðir]](/media/utgefidefni/Culture-&-Events.jpg)
![[Veitingar]](/media/utgefidefni/Dining-&-wining--Veitingar.jpg)
![[Vatnajökulsþjóðgarður]](/media/utgefidefni/Vatnajokull-national-park.jpg)


