Fréttir
Haustþing Ríkis Vatnajökuls
Frekari upplýsingar
Ferðaþjónustu, matvæla og menningarklasinn Ríki Vatnajökuls í samstarfi við Háskólasetur á Hornafirði mun standa fyrir opnu málþingi í Nýheimum á Höfn 21.-22. október 2009. Umfjöllunarefnið verður umhverfis- og skipulagsmál í ferðaþjónustu á Íslandi og er málþingið opið öllum.
Dagskrá málþingsins nú tilbúin og hana má nálgast hér á pdf formi og inn á viðburðardagatalinu.
Á miðvikudag mun dagskrá hefjast kl. 9 í Nýheimum og standa til kl. 16.40. Seinni daginn munu vinnuhópar taka til starfa en áætlað er að vinna þeirra skili Gæða og umhverfisstefnu fyrir Ríki Vatnajökuls. Því eru heimamenn hvattir til þess að taka virkan þátt í umræðum. Dagskráin hefst kl. 9 og stendur til hádegis þann daginn.
Uppskeruhátíð Ríkis Vatnajökuls mun fara fram á miðvikudagskvöldið á Hótel Höfn og eru áhugasamir beðnir um að skrá sig á Hótelinu í síma 478-1240.
Skráning á málþingið fer fram hjá Söndru Björgu hjá Háskólasetrinu á Höfn í síma 470-8044 eða á netfanginu sbs@hi.is. Ákveðið hefur verið að framlengja skráningarfrest fram á sunnudag og því er lokadagur skráningar er sunnudagurinn 18. október 2009. Ekkert þátttökugjald er á málþinginu.

![[Ferðaupplýsingar]](/media/utgefidefni/Travel.jpg)
![[Fundir og ráðstefnur]](/media/utgefidefni/Conference.jpg)
![[Jöklaferðir]](/media/utgefidefni/GlacierTours.jpg)
![[Menning og viðburðir]](/media/utgefidefni/Culture-&-Events.jpg)
![[Veitingar]](/media/utgefidefni/Dining-&-wining--Veitingar.jpg)
![[Vatnajökulsþjóðgarður]](/media/utgefidefni/Vatnajokull-national-park.jpg)


