Fréttir
Unnið að kynningarmyndbandi um Ríki Vatnajökuls
Nú hefur verið tekin ákvörðun um að gera kynningarmyndband um okkar fallega hérað, mikil áhersla verður á náttúruna, fjöllin og jökulinn. Lögð verður áhersla á að ná góðum vetrarmyndatökum af allri þeirri afþreyingu sem hægt er að stunda í ríki Vatnajökuls yfir vetrartímann. Verkefnið er fjármagnað með styrkjum vegna Fjallaverkefnis sem verið er að vinna að og byrjað var að mynda á ísklifurhátíðinni sem fram fór í Öræfum um helgina. Mæting var góð þrátt fyrir að það hafi þurft að fresta hátíðinni um eina viku vegna hlýinda en þetta fór allt á besta veg þökk sé Vetur konungi sem lét sjá sig svo um munaði fyrir síðustu helgi. Sumar klifurleiðirnar voru nokkuð blautar en þetta slapp vel, og var hópurinn ánægður með góða helgi. Íslenskir fjallaleiðsögumenn buðu hópnum uppá sameiginlega grillveislu á laugardagskvöldinu en kvöldið endaði með því að hvíla lúin bein í mjög svo frumlegum heitum potti í Skaftafelli.
Tökurnar á ísklifrinu fyrir kynningarmyndbandið fóru fram í Skaftafelli við Svartafoss og tókst vel til, en mikilvægt er fyrir okkur að eignast flott kynningarmyndband til þess að markaðssetja svæðið okkar og þau fyrirtæki sem hér starfa.
Ég vil þakka Ísalp og þátttakendum ísklifurhátíðarinnar fyrir aðstoðina við tökurnar segir Rósa Björk Halldórsdóttir framkvæmdastjóri Ríki Vatnajökuls

![[Ferðaupplýsingar]](/media/utgefidefni/Travel.jpg)
![[Fundir og ráðstefnur]](/media/utgefidefni/Conference.jpg)
![[Jöklaferðir]](/media/utgefidefni/GlacierTours.jpg)
![[Menning og viðburðir]](/media/utgefidefni/Culture-&-Events.jpg)
![[Veitingar]](/media/utgefidefni/Dining-&-wining--Veitingar.jpg)
![[Vatnajökulsþjóðgarður]](/media/utgefidefni/Vatnajokull-national-park.jpg)


