Fyrirtæki

Frost og Funi Hofi í Öræfum
Frost og Funi Hofi í Öræfum
Frost og Funi Hofi í Öræfum

Frost og Funi, Hofi í Öræfasveit

Gistiheimili

Á gistiheimilinu „Frost og Funi“ eru 21 herbergi, gestamóttaka með stórri setustofu og rúmgóður matsalur. Á jarðhæð hefur verið opnuð heilsulind fyrir gesti gistiheimilisins. Hof er staðsett í einni fegurstu og sérkennilegustu sveit á Íslandi, "Sveitinni milli sanda".  Í faðmi ægifagurrar náttúru bjóðum við upp á notalega gistingu ásamt morgun og kvöldverði. 
Hof er staðsett í einni fegurstu og sérkennilegustu sveit á Íslandi, "Sveitinni milli sanda".  Yfir gnæfir Öræfajökull, framundan breiðir Skeiðarársandur úr sér með Ingólfshöfða við ströndina,þjóðgarðurinn í Skaftafelli er örskammt frá og austur undan er stutt í töfraheim Jökulsárlóns á Breiðamerkursandi. Í faðmi þessar ægifögru náttúru bjóðum við upp á notalega gistingu ásamt morgun og kvöldverði. Í gistiheimilinu eru 21 herbergi, gestamóttaka með stórri setustofu og rúmgóður matsalur. Á jarðhæð hefur verið opnuð heilsulind fyrir gesti gistiheimilisins með  heitum potti, gufubaði, hvíldaraðstöðu og búningsklefum með sturtum  fyrir karla og konur.
Allt sameiginlegt rými er skreytt með frumverkum nokkurra fremstu myndlistarmanna landsins.


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica