Humarhöfnin
Humarhöfnin
Humarhöfnin er veitingastaður við höfnina á Höfn í Hornafirði. Veitingahúsið sérhæfir sig í réttum þar sem notast er við svæðisbundið hráefni en með aðaláherslu á leturhumar (langoustine). Starfsemin er byggð á fáum réttum þar sem vöruþróun skipar stóran sess þar á meðal þróun og aðlögun á réttum úr heilum og lifandi humri að íslenskum aðstæðum.
Fyrir utan humarrétti eru einnig boðstólnum aðrir svæðisbundnir réttir.
- Heimilisfang: Hafnarbraut 4
- 780 Höfn
- Sími: 478 1200
- Fax: 478 1207
- Netfang: info@humarhofnin.is
- Heimasíða: www.humarhofnin.is
- Opnunartími: 1. - 15. maí 18.00 - 22.00
16. maí – 30. sept. 12.00 – 22.00 alla daga.
Jólamatseðill í desember.
Annars opið fyrir hópa eftir samkomulagi.
Aðrar opnanir auglýstar sérstaklega.
Húsnæði Humarhafnarinnar var áður í eigu Kaupfélags Austur-Skaftfellinga, upphaflega var þar rekin verslun en í seinni tíð skrifstofur. Húsinu hefur verið breytt aftur og reynt að koma því í sem næst upprunalegt ástand og áætlað er að gera sögu Kaupfélagsins og aðkomu þess að humarveiðum skil á efri hæð hússins. Humarhöfnin býður bæði einstaklingum og hópum þjónustu. Hægt er að panta minni herbergi s.s. stjórnarherbergið, fundastofuna eða kaupfélagstjóraskrifstofuna fyrir smærri hópa á efri hæð en salur á neðri hæð tekur u.þ.b. 60 manns í sæti. Eigendur Humarhafnarinnar eru; Anna Erla Þorsteinsdóttir, lærður þjónn og veitingamaður, Ólafur Vilhjálmsson, María Gísladóttir og Ari Þorsteinsson öll búsett á Hornafirði. Opnunartími er frá 17:00 - 22:00 en hægt er að taka á móti hópum í hádeginu ef pantað er með fyrirvara.