Vagnsstaðir
Farfuglaheimilið Vagnsstöðum
Á farfuglaheimilinu Vagnsstöðum eru í boði 7 herbergi, öll með handlaug. Góð eldunaraðstaða er fyrir gesti og sameiginlegt rými og einnig eru 3 smáhýsi. Á Vagnsstöðum er einnig tjaldstæði með góðri hreinlætisaðstöðu. Farfuglaheimilið er í fallegu umhverfi, stutt bæði til fjalla og niður að strönd þar sem er mikið fuglalíf. Góðar gönguleiðir eru til fjalla og hægt er að kaupa eða leigja afnot af gönguleiðakorti, ásamt því að seld eru þar veiðileyfi. Farfuglaheimilið er vel staðsett fyrir þá sem vilja nýta sér afþreyingu við og á Vatnajökli, og þaðan er boðið er upp á 4-5 klst. jeppa- og vélsleðaferðir á jökulinn með Jöklajeppum. Skaftafell 85 km. og Jökulsárlón 30 km.