Jökulsárlón
Jökulsárlón á Breiðamerkursandi er einn allra vinsælasti áfangastaður ferðamanna á Íslandi. Það er í alfaraleið við þjóðveg 1, um miðja vegu milli Skaftafells og Hafnar í Hornafirði. Gríðarstórir ísjakar fljóta um bláleitt lónið og eru þeir ótvíræð listaverk af náttúrunnar hendi. Mikið er af sel í Jökulsárlóninu og yfir veturinn liggja þeir oft tugum saman í ísbreiðunni. Talsvert fuglalíf er á og við Jökulsárlón s.s. kría, skúmur, æðarfugl og lómur.
Jökulsárlónið fór að myndast við jökulsporðinn í kringum 1934-1935 þegar Breiðamerkurjökull tók að hopa, en fyrir þann tíma rann Jökulsá á Breiðamerkursandi beint undan jökli um 1,5 km leið til sjávar. Síðan þá hefur jökullinn hopað og sístækkandi lón myndast. Lónið er um 284 metra djúpt við jökulstálið en undir jöklinum er fjörður þar sem dýpið er meira eða allt að 300 metrar undir sjávarmáli. Vegna brimrofs styttist áin stöðugt og farvegur hennar grefst sífellt niður. Sjávarfalla gætir í lóninu og er það nú sambland af ferskvatni og sjó sem þýðir að lónið er hlýrra en ella og því bráðnar ísinn hraðar en áður. Síld og loðna ganga inn í lónið og selurinn eltir ætið.
Auðvelt er að verja heilum degi við lónið. Gönguferð meðfram lóninu eða niður í fjöru er möguleg allt árið. Yfir sumarið eru í boði eru bátsferðir um lónið, þar sem siglt er milli ísjakanna og tekur ferðin um 40 mínútur.
Tengt efni:
![[Ferðaupplýsingar]](/media/utgefidefni/Travel.jpg)
![[Fundir og ráðstefnur]](/media/utgefidefni/Conference.jpg)
![[Jöklaferðir]](/media/utgefidefni/GlacierTours.jpg)
![[Menning og viðburðir]](/media/utgefidefni/Culture-&-Events.jpg)
![[Veitingar]](/media/utgefidefni/Dining-&-wining--Veitingar.jpg)
![[Vatnajökulsþjóðgarður]](/media/utgefidefni/Vatnajokull-national-park.jpg)


