Létt grín
Tom Cruise og Gunna fyrir framan tjaldið góða
Tom Cruise og Gunna fyrir framan tjaldið góða

Tom Cruise á Jöklasýningu

Hann var ósköp indæll og sýndi safninu mikinn áhuga sagði Guðrún Ingimundardóttir starfsmaður Jöklasafnsins um óvænta komu Tom Cruise á safnið. Auðvitað varð ég hissa þegar hringt var í mig og ég spurð hvort möguleiki væri á að leikarinn fengi að skoða safnið. Í fyrstu hélt ég að þetta væri eitthvað grín, en sannfærðist síðan um að svo var ekki. Hann kom svo hingað á mánudaginn ásamt fylgdarliði og var hreinlega heillaður af safninu sem og Hornafirði.

Mesta hrifningu vakti gamla jöklatjaldið og varð ég að leyfa honum að fella tjaldið og hjálpa honum svo við að reisa það á nýjan leik. Hann var nefnilega í skátunum í gamla daga og vildi fá að rifja upp kunnáttu sína. Það kom mér á óvart hvað leikarinn frægi hafði líkan fatastíl og Þorgeir Kristjánsson, og þegar ég minntist á þetta við hann sagðist hann hafa séð á hornafjordur.is í byrjun október, myndarlegan mann sitja fyrir framan þetta tjald, og til að vekja sem minnsta athygli hafi hann ákveðið að klæðast á sama hátt.

Sjá stærri mynd 


 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica