Tekinn tali

Guðrún Ingimundardóttir
Guðrún Ingimundardóttir
Guðrún Ingimundardóttir stuðningsfulltrúi skipar annað sætið á framboðslista Samfilkingarinnar á Hornafirði.
Mynd 3 af 3
1 2 3

Ferðamenn eru okkar stóriðja

25.03.2004

Nýr formaður ferðamálafélags Austur Skaftafellssýslu er Guðrún Ingimundardóttir fædd og uppalin í uppsveitum Árnessýslu, kom árið 1975 til Hornafjarðar og ætlaði að vera eitt sumar en hún fór ekki til baka. Guðrún býr á Höfn ásamt eiginmanninum Þóri Snorrasyni og syninum Snorra Frey en þrjú uppkomin börn hennar eru í Reykjavík. Guðrún er kunnug flestu sem við kemur ferðaþjónustu á heimasvæðinu bæði sem blaðamaður og með vinnu sinni við ferðaþjónustu. Guðrún segir að þetta leggist vel í sig og hún er tilbúin að leggja sig alla fram í þessu nýja starfi. Ferðamál og öll þjónusta þeim tengd skipta okkur öll á þessu svæði miklu máli og því er tilvalið að taka nýkjörinn formann tali og spyrja um starfið, tildrög þess og hvað er framundan núna þegar ferðaþjónustuárið er að byrja.

,,Ásmundur var búinn að láta vita fyrir áramót að hann ætlaði að hætta og þá var farið að velta fyrir sér hver tæki sæti hans sem formanns og lendingin var að ég var spurð hvort ég vildi taka þetta að mér. Ég var svolítið hikandi af því að ég er ekki með neinn rekstur en ég hef brennandi áhuga á ferðamálum, ég hef gott fólk sem er á bak við mig í stjórninni og eins utan hennar svo að ég sló til. Ég hef haft áhuga á ferðamálum sl. 12 ár, ég lærði leiðsögn árið 1991 og þá kviknaði þessi áhugi á undraskömmum tíma þennan vetur. Ég hef ekki unnið mikið við þetta, aðeins verið að leiðseigja og ég vann við jöklasýninguna hér í tvö sumur og verð áfram þar í sumar. Fyrra sumarið mitt við jöklasýninguna var upplýsingamiðstöð fyrir ferðafólk þar líka og það er einhver sú skemmtilegasta vinna sem ég hef nokkurn tíman unnið, það er að taka á móti fólki sem er í fríi því það er yfirleitt í góðu skapi og það er svo gaman að sjá það labba ánægt út frá manni” segir Guðrún brosandi.

“Við erum svo heppin að búa á frábæru svæði, hér á Höfn sérstaklega höfum við svalt veður og við höfum jöklana og sandana, það er það sem útlendingarnir sækjast eftir og finna ekki heina hjá sér og það er okkar styrkleiki. Þetta er okkar stóriðja og sú stóriðja sem ég er sátt við og stolt af því að fá að taka þátt í. Möguleikarnir eru óþrjótandi og það er kraftmikið fólk hér sem hefur trú á framtíðina og nú hillir undir að stofnaður verði þjóðgarður um Vatnajökul og byggðin sem er næst honum tilheyrir okkur. Ég sé fyrir mér að við setjum af stað samkeppni um vörumerki fyrir héraðið og þetta vörumerki fari á allar vörur sem framleiddar eru í sveitarfélaginu. Þetta gæti verið gæðastimpill á gistingu, veitingahús, minjagripi, matvöruna já og jafnvel heyrúllurnar.
Við eigum svo margt ógert, það er gott það sem komið er, við höfum svo góðan grunn til að byggja á og verðum að passa að byggja hann upp hægt og rólega skemma ekkert fyrir okkur og halda í það sem við höfum hér og gæta þess að það spillist aldrei”.

Guðrún segir að fyrsta verkefni sem kemur til kasta nýju stjórnarinnar sé Ferðatorgið í Smáralind í Reykjavík.
“Ferðatorgið er haldið fyrstu helgina í maí á hverju ári og er það ætlað fyrir innanlandsmarkað. Það er feikigóð mæting á ferðatorginu og við verðum að sjálfsögðu með bás og fáum fólk annað hvort einhverja hér á staðnum eða námsmenn héðan sem eru í Reykjavík til að kynna svæðið, og er þetta allt í undirbúningi.Upplýsingamiðstöðin hefur verið á hrakhólum undanfarin ár og verið hálfgerð tilraunastarfsemi en nú hillir undir að hún fari inn í Nýheima og verði þar a.m.k. næstu fimm árin í umsjá Menningarmiðstöðvarinnar þó ekki sé búið að ganga endanlega frá þessum málum, en unnið er við að koma þeim í höfn. Við þurfum sáralítið að auglýsa okkur fyrir sumarið, það fyllist hér allt í gistingu og annað, miklu meira atriði er að skipuleggja hinn tíma ársins. Það er ekki hrist fram úr erminni að laða fólk hingað utan ferðatímans og við verðum að vera vakandi fyrir því og leggja höfuðið í bleyti og það er aldrei að vita nema einhverjar hugmyndir verði að veruleika áður en þetta ár er liðið.
Við þurfum betri og meiri markaðssetningu fyrir svæðið hér fyrir okkar hvítu jökla, svörtu sanda, birkikjarr og gott mannlíf “ segir Guðrún að lokum.

Við þökkum Guðrúnu fyrir spjallið og óskum henni velfarnaðar í formannsstarfinu.

Senda grein

Þetta vefsvæði byggir á Eplica