Maí
Hesta Hummi
Hesta Hummi

28.05.2003 Maí

Hestahelgi og Humarhátíð

Fjórðungsmót austfirskra hestamanna 2003 fer fram dagana 3.– 6.júlí á félagssvæði Hornfirðings við Stekkhól sem áður gékk undir nafninu Fornustekkar og verður það haldið sömu helgi og Humarhátíðin. Það er hestamannafélagið Hornfirðingur sem sér um framkvæmd mótsins og verða keppnisgreinar hefðbundnar að öðru leyti en því að nú verður boðið upp á opna stóðhestakeppni. Tölt og skeiðkeppni verður einnig höfð opin. Gæðingakeppnin er eingöngu ætluð hestum frá hestamannafélögunum á Austurlandi þ.e. frá Hornfirðing, Freyfaxa, Blæ, Geisla, Goða og Glófaxa.
Boðið verður upp á metnaðarfulla skemmtidagskrá á föstudags og laugardagskvöld í tengslum við mótið. Venja er að fólk fjölmenni á föstudagskvöld í svokallaða Skógeyjarútreið í tengslum við grillveislu við Skógey. Búist er við miklum fjölda þátttakenda þar og ættu hestamenn að fjölmenna með gæðinga sína til þátttöku. Kvöldvaka verður á laugardagskvöld á Stekkhól. Humarhátíðin er sömu helgi á Höfn. Það er árleg fjölskylduhátíð sem verður sífellt vinsælli með hverju árinu. Boðið er upp á mikla afþreyingu fyrir alla fjölskylduna. Skemmtun fer víða fram, leiktæki eru í boði fyrir börn og unglinga og það ríkir karnivalstemming í bænum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica