Júní
Brúin yfir Hornafjarðarfljót
Brúin yfir Hornafjarðarfljót
Gamla brúin.

29.06.2003 Júní

Einbreiðum brúm fækkar .

Einbreiðum brúm á leiðinni Hornafjörður Reykjavík fækkar um þrjár á þessu ári en alls eru þær 24. Þær brýr sem teknar verða í notkun fyrir næstu áramót eru: Þjórsárbrú, brú yfir Klifanda og Skaftá.
Í Lóni verða Hlíðará og Össurará settar í hólka. Eftir verða fimm einbreiðar brýr frá Hvalnesi að Almannaskarði.Vonir standa til að byrjað verði á Almannaskarðs-göngunum fyrir jól.

Reynir Gunnarsson hjá Vegagerðinni segir að núna sé unnið að byggingu brúa yfir Þjórsá og Klifanda og verða þær teknar í notkun fyrir næstu áramót.
Tilboð í vega og brúargerð um Skaftá við Kirkjubæjarklaustur voru opnuð 2.júní og átti Mikael ehf á Hornafirði lægsta tilboðið kr 68.970.070.
Byggja á tvær nýjar brýr á Skaftá, 20 og 26 m langar og skal verkinu verða lokið að fullu 15.des.2003. Frá Almannaskarði austur að Hvalnesi eru sjö einbreiðar brýr og verða tvær þeirra, Hlíðará og Össurará settar í hólka í sumar. Reynir segir að ekki sé komin dagsetning á hvenær framkvæmdir byrji við göngin undir Almannaskarð en hann vonast til að það verði jól.
Þessa daga er verið að setja bundið slitlag á veginn milli Blábjarga og Melrakkaness 4,5 km.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica