Beint í leiðarkerfi vefsins.
Í morgun var mætti hópur unglinga á Sindravöll til að leggja þökur á völlinn. Þetta eru 11 unglingar úr Veraldarvinum, samtökum unglinga víðs vegar að úr heiminum sem bjóða fram vinnu sína endurgjaldslaust. Krakkarnir unnu í gær með vinnuskóla- krökkunum á Höfn við að hreinsa til í bænum.
Lesa meira
Björn Arnarson safnvörður er eins og fjöldi Hafnarbúa að hreinsa og snyrta fyrir Humarhátíðina. Búið er að setja gamla sýslutjaldið upp á túninu við Gömlubúð og þar verða seldar veitingar á humarhátíðinni. Sýslutjaldið var fyrst notað 1944 þegar lýðveldinu var fagnað og síðan hefur það verið notað við mörg tækifæri svo sem brúðkaup, afmæli og menningarsamkomu margskonar.
Lesa meira
Ákveðið hefur verið að veita ókeypis aðgang að söfnum og sýningum yfir Humarhátíðarhelgina en þá verður mikið um að vera af menningartengdum viðburðum svo sem sýningin "Heimsókn í Hornafjörð”, listsýning Rúnu Bennýjar, saga leiklistar á Hornafirði og Hjördís Árnadóttir opnar málverkasýningu að Hafnarbraut 36.
Undanfarna daga hefur verið unnið hörðum höndum að samsetningu sex gisti-húsa sem sett verða niður á tjaldstæðinu á Höfn rétt við Þjónustumiðstöðina. Þetta eru timburhús frá Finnlandi sem Náttból ehf á Höfn flytur inn í einingum og setur saman.
Lesa meira
Það hefur aldrei verið betra í ferðaþjónustunni hjá okkur en verið hefur í vor og sumar segir Ólafur Sigurðsson ferðaþjónustubóndi á Svínafelli í Öræfum.Ólafur og Pálína Þorsteinsdóttir kona hans eru einu aðilarnir í Öræfum sem eingöngu eru með svefnpokapláss ásamt eldunaraðstöðu sem einnig er fyrir þá sem gista á tjaldstæðinu hjá þeim og rúmar matskálinn um 80 manns. Gistiaðstaða í Svínafelli er í sex smáhúsum þar sem rúm er fyrir fjóra í hverju húsi og kostar svefnpokapláss kr.1900 á mann.
Lesa meira