Aldrei betra en í vor og sumar
Það hefur aldrei verið betra í ferðaþjónustunni hjá okkur en verið hefur í vor og sumar segir Ólafur Sigurðsson ferðaþjónustubóndi á Svínafelli í Öræfum.Ólafur og Pálína Þorsteinsdóttir kona hans eru einu aðilarnir í Öræfum sem eingöngu eru með svefnpokapláss ásamt eldunaraðstöðu sem einnig er fyrir þá sem gista á tjaldstæðinu hjá þeim og rúmar matskálinn um 80 manns. Gistiaðstaða í Svínafelli er í sex smáhúsum þar sem rúm er fyrir fjóra í hverju húsi og kostar svefnpokapláss kr.1900 á mann.
Eitthvað hefur fallið niður af pöntunum frá ferðaskrifstofum frá í vetur en ólafur segir að þau pláss fyllist strax af þessum venjulegu ferðamönnum sem keyra bara af stað án fyrirfram pantana. Pálína og Ólafur keyptu í vor,ásamt Einari Ingólfssyni og Arndísi systur Ólafs, verslunarrekstur Kask á Fagurhólsmýri og leigja húsnæðið þar sem verslunin hefur verið.
Verslunin heitir Búðin milli sanda og verður hún rekin með svipuðu sniði og áður þó verður reynt að hafa meira vöruúrval og lögð meiri áhersla á veitingaþjónustu en verið hefur þar. Ólafur segir að mikill munur sé á veðri á þessum tveim starfsstöðum hjá honum þó aðeins séu nokkrir km. á milli þeirra t.d. hefur undanfarið verið sól og blíða í Svínafelli en hvasst og rigning á Fagurhólsmýri.





Skrifa athugasemd