Blíðskapar veður við lónið.
Hér er blíðskapar veður, logn og rakt, segir Einar Björn Einarsson ferðaþjónusturekandi við Jökulsárlón, þegar hann er spurður frétta um lífið og veruna við Jökulsárlón. Fjöldi ferðamanna er svipaður og var á sama tíma í fyrra. Mikið kríuvarp er á svæðinu við lónið og segir Einar Björn að meira sé af kríu núna en hefur verið undanfarið og mikið meira af síli í lóninu en áður svo fuglinn hefur nóg æti. Fólk sækir mikið í varpið og rænir eggjunum, þetta er stanslaus ásókn í eggin og oft koma margar fjölskyldur á dag. Þetta er eins og í hænsnakofa, eggin tínd um leið og þau koma. Tveir skúmar hafa gert sig heimakomna hjá starfsfólkinu við lónið og þiggja mat hjá þeim. Einar Björn er bjartsýnn á sumarið og segir að pantanir séu svipaðar og síðasta ár sem var mjög gott.




Skrifa athugasemd