Júlí
Grillveisla í boði Olís
Sólin leikur nú við Hornfirðinga og gesti þeirra en það var líf og fjör við þjónustumiðstöðina á Höfn í morgun og grill-pylsulyktina lagði um nágrennið. Haukur og Ásdís á Olís voru þar að grilla pylsur sem Olís bauð fólkinu sem er á húsbílaferð um landið uppá með gosi og tilheyrandi meðlæti.
Eins og fram kom á hornafjörður.is í gærkvöldi fer fólkið í dag til Djúpavogs og það fer eftir veðri hvort farin verður ferð í Papey í kvöld, en ferjan þarf fleiri ferðir til að fara með allan hópinn út í Papey í dag.




Skrifa athugasemd