Júlí
SLR MCLaren sportbíl frá Mercedes Benz
SLR MCLaren sportbíl frá Mercedes Benz

21.07.2003 Júlí

Glæsivagn í myndatöku við Jökulsárlón

Í siðast liðinni viku var verið að gera auglýsingamynd við Jökulsárlón um hinn nýja SLR MCLaren sportbíl frá Mercedes Benz. Mikil leynd hvíldi yfir myndatökunni þar sem bíllinn verður ekki sýndur opinberlega fyrr en á bílasýningu í Franfurt í haust og óviðkomandi fengu ekki að koma nálægt tökustaðnum.

Kvikmyndafyrirtækið Pegasus sá um myndatökuna sem fram fór á planinu hjá Einari Birni við þjónustumiðstöðina við Jökulsárlón. Þeir voru með tvo bíla hér til að mynda, annar var hér á planinu en hinn rétt hér fyrir vestan og ég fékk að ganga kring um hann en ekki að skoða hann að innan og það fer ekki milli mála að þetta eru glæsilegir bílar sagði Einar Björn.
Benz-umboðið er ekki búið að fá neitt yfir SLR MCLaren sportbílinn og ekki von á því fyrr en þegar sýningin verður í haust. Ef rétt reynist að verð á honum sé um 300 þúsund evrur þýðir það að hann muni kosta 40-50 milljónir kr.ísl. V8 vél, hátt í 500 hestöfl er í bílnum og hámarkshraði yfir 300 km. á klst. Ekki er ákveðið hvenær umboðið á Íslandi fær sýningarbíl til sín.
Stutt er síðan verið var að mynda bíl frá Peugeot við Jökulsárlón og BMW við Fjallsárlón hvoru tveggja auglýsingamyndir á vegum Pegasus.
Hrönn hjá Pegasus segir að Jökulsárlón og umhverfi þess sé mjög ákjósanlegur staður til myndatöku í þeirri stórfenglegu náttúrufegurð sem þar er og í öðruvísi landslagi en finnist annars staðar í heiminum og að vaxandi áhugi sé á staðnum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica