Júlí
Stebbi kokkur og Laufey
Stebbi kokkur og Laufey

23.07.2003 Júlí

Ferðaþjónustan blómstrar

Þetta er búið að vera alveg frábært í ferðaþjónustunni hjá okkur í sumar, júní mánuður var eins og júlí alltaf fullbókað og vel pantað langt fram á haust og ef heldur áfram sem horfir verður þetta alveg topp sumar segir Laufey Helgadóttir sem rekur ferðaþjónustuna á Smyrlabjörgum í Suðursveit ásamt manni sínum Sigurbirni Karlssyni.

Laufey segir að þau hafi farið út í að bæta við gistirýmið til að geta annað aukinni aðsókn. Þann 18. júní sl. voru teknar í notkun sex tveggja manna húsaeiningar og reiknað er með að fleiri bætist við næsta sumar. Þetta eru gámar sem settir eru saman, einangraðir og innréttaðir. Baðherbergi fylgir hverjum gámi og þetta eru eins og venjuleg tveggja manna herbergi. Húseiningarnar eru leigðar til sjö ára og á þeim tíma skoðum við hvort við viljum kaupa þær eða leigja áfram segir Laufey. Gistirými er fyrir 87 manns á Smyrlabjörgum og starfsmenn við ferðaþjónustuna eru 16. Laufey er aðalkokkurinn og hefur orð á sér fyrir að búa til sérlega ljúffengan mat. Þegar Laufey þarf að bregða sér frá fær hún matreiðslumanninn Stefán Stefánsson til að leysa sig af.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica