Fyrir 50 árum í Skaftafelli
Nýlega var haldin minningarathöfn við Skaftafellsjökul og settur upp minnisvarði um tvo breska stúdenta sem fórust á Öræfajökli 1953. Það er Íslandsvinurinn Dr.Jack D.Ives sem lét setja upp þennan minnisvarða um tvo félaga sína sem fórust í rannsóknarleiðangri á Öræfajökli 1953.Viðstaddir athöfnina,ásamt fleirum, voru fjölskylda Dr. Jack ásamt fimm félögum hans úr leiðangrinum forðum.
Dr. Jack Ives byrjaði sem háskólanemi að sjá um rannsóknir á Morsárjökli við Skaftafell í Öræfum fyrir 50 árum 1953-1954 ásamt hópi breskra stúdenta. Var hann í slíkum leiðangri þegar tveir úr hópnum fóru í rannsóknarleiðangur á Öræfajökul og áttu ekki þaðan afturkvæmt og hafa aldrei fundist.
Jack Ives tengdist strax Ragnari Stefánssyni í Skaftafelli og fjölskyldu hans sterkum vináttuböndum og hefur alla tíð haft mikið samband við þau og komið reglulega í heimsóknir til Íslands dvalið hjá fjölskyldunni, fyrst í Skaftafelli síðar í Freysnesi. Fyrir þrem árum kom hann í heimsókn og í þeirri ferð gaf hann tindi á Miðfelli inni í Morsárdal nafnið Ragnarstindur við hátíðlega athöfn í Skaftafelli. Það var honum mikil ánægja að heiðra þannig minningu síns látna vinar Ragnars Stefánssonar þjóðgarðsvarðar í Skaftafelli. Jack Ives fylgist vel með því sem gerist á Íslandi og hefur mikinn áhuga á landi og þjóð. Hann býr yfir óhemjumiklum fróðleik um náttúru landsins, jökla og fjöll og ferðast mikið um landið í heimsóknum sínum hingað.





Skrifa athugasemd