Ágúst
Páll Sveinsson
Páll Sveinsson

06.08.2003 Ágúst

Landgræðsluflugvélin Páll Sveinsson á Hornafjarðarflugvelli

Douglas-flugvél Landgræðslunnar Páll Sveinsson kemur til Hafnar n.k. laugardag 9. ágúst og gefst þá öllum tækifæri á að skoða þennan merkisgrip á Hornafjarðarflugvelli frá kl. 12:30 til 14:30. Eins og elstu menn muna þá þjónaði þessi flugvélartegund Hornfirðingum hér á árum áður og þótti ein af bestu flugvélum sem völ var á. Vélarnar gengu undir nafninu Þristurinn (Doglas DC3) og notuðu þær Melaflugvöll sem staðsettur var við Melatanga á Suðurfjörum og síðar Árnanesflugvöll eftir að hann var tekinn í notkun.

Það var árið 1972 sem Flugfélag Íslands gaf Landgræðslunni Douglasvélina Gljáfaxa TF-ISH, en hún hafði áður verið notuð til farþegaflugs.
Flugvélinni var gefið nafnið Páll Sveinsson og fékk einkennisstafina TF-NPK. Flugvélin sem er orðin 60 ára gömul hefur nú í 30 ár dreift áburði til landgræðslu og hefur henni verið flogið af flugmönnum í Félagi íslenskra atvinnuflugmanna. Þeir sem hafa flogið Páli Sveinssyni hafa gert það endurgjaldslaust í þágu landgræðslu frá upphafi landgræðsluflugsins.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica