Hornfirðingar eignast Íslandsmeistara í Póló
Á Einarsstaðamóti sem var haldið var á Einarsstöðum í Aðaldal síðustu helgi fór fram Íslandsmeistaramót í Póló og er það í fyrsta skipti sem slíkt mót er haldið hér á landi. Það voru okkar menn í Útreiðarfélaginu Glófaxa sem báru sigur úr bítum eftir harða keppni. Um 1000 manns voru saman komin á Einarsstöðum í blíðskapar veðri og var samdóma álit þátttakenda að vel hafi til tekist. Þrjú lið tóku þátt í keppninni en í henni kepptu allir við alla, Glófaxamenn sigruðu Létti frá Akureyri 1-0 í fyrsta leik, Léttir og Feykir í Öxarfirði gerðu jafntefli 2-2 og í úrslitaleiknum gerðu Feykir og Glófaxi jafntefli 1-1 þar með var Glófaxi kominn með 4 stig og sigraði með glæsibrag. Feykir lenti í öðru sæti með 2 stig og Léttir í því 3. með eitt stig.
Þeir sem kepptu fyrir hönd Glófaxa voru Björn Jónsson, Axel Jónsson, Stefán “Rambo” Stefánsson, Kári Steingrímsson frá Reykjavík og Ragnar Stefánsson bóndi í Árnanesi. Liðsstjóri og þjálfari þeirra var Ingimar Bjarnason stórbóndi og hestamaður frá Jaðri í Suðursveit. Glófaxamennirnir Örn Þorbjörnsson og Hallur Sigurðsson voru fjarri góðu gamni.
Pólóleikurinn fer þannig fram að í hverju liði keppa 4 knapar og hefur hver knapi kylfu sem hann notar til að rekja og gefa boltann. Á vellinum eru tvö mörk sem eru 4. metrar á breidd og eru 50 metrar á milli þeirra. Að sögn Guðmundar Birkis Þorkelssonar upphafsmanns Íslandsmeistaramótsins þá eru menn að skoða keppnir á erlendri grundu með það að markmiði að samræma leikreglur. Hver veit nema við eigum eftir að sjá Glófaxamenn keppa á enskum keppnisvöllum en Póló er mjög vinsælt í Bretlandi.
Útreiðarfélagið Glófaxi var stofnað af þeim félögum Bjössa Jóns, Axel Jóns, Ödda Tobba, og Halli á Stapa og veittu þeir síðar Stefáni “Rambó” inngöngu í félagið en hann er sá síðasti sem hefur fengið inngöngu en margir hafa sótt um.
Þess má geta að úrslitamark keppninnar og jafnframt flottasta mark mótsins gerði hestur Bjössa Jóns. Reykur frá Ásatúni og var markið með þeim hætti að Bjössi hitti ekki boltann, hesturinn tók boltann sparkaði með afturlöppunum og beint í mark við mikinn fögnuð áhorfenda.





Skrifa athugasemd