Ágúst
Hrund í fallegri lopapeysu
Hrund í fallegri lopapeysu

14.08.2003 Ágúst

Líf og fjör í Pakkhúsinu

Í Pakkhúsinu, sem staðsett er við höfnin á Hornafirði er Handraðinn, félag handverksfólks á Höfn til húsa með sína verslun. Þar ræður ríkjum Hrund Jónsdóttir starfsmaður Handraðans. Hrund sagði að aðsókn hefði verið mjög góð í júní og júlí en heldur fer að draga úr aðsókninni þegar kemur fram í ágúst. Pakkhúsið er opið frá kl. 13 til 18 alla daga.

Um 30 félagar eru í Handraðanum og flestir þeirra eru með einhverjar vörur til sölu í Pakkhúsinu, en þar er hægt að kaupa meðal annars lopapeysur, sokka og vettlinga, barna og dúkkuföt, renndar trévörur, málverk, ýmsar vörur unnar úr steinum og margt fleira. Oft er líf og fjör í húsinu þegar hópar erlendra sem og innlendra ferðamanna koma og gaman er að sjá og heyra hvað þeir eru ánægðir með handverkið, þjónustuna og alla umgjörð í húsinu. Ekki skemmir fyrir stemmingunni í húsinu að hægt er að setjast niður og fá sér kaffibolla, virða fyrir sér gamla muni, spjalla við náungann eða bara að fylgjast með alþjóðlegri flóru viðskiptavina Handraðans. Ferðamenn sem og heimamenn ættu ekki að láta hjá líða að líta við í Pakkhúsinu, því eins góður maður sagði ”þetta er hús með sál, góða muni, ágætt kaffi og þjónustu lipran starfsmann”

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica