Ágúst
Lúlli og Óli Einars sprækir í lauginni
Lúlli og Óli Einars sprækir í lauginni
SKyldu þessir njóta sín í nýju lauginni.

15.08.2003 Ágúst

Í sund alla daga

“Sundlaug Hornafjarðar er kannski ekki stórt mannvirki en hún er gott mannvirki og án sundlaugar viljum við ekki vera” þetta sagði einn af sundköppum Hornafjarðar fyrir nokkrum árum og brosti sínu blíðasta. Á þessu ári hafa heldur færri farið í sund en árið 2002. Athygli vekur að erlendir ferðamenn eru ekki eins áberandi í lauginni og undanfarin ár en á móti kemur töluverð fjölgun innlendra ferðamanna. Sundlaugin á Hornafirði er merkilegt mannvirki sem þjónað hefur íbúum svæðisins sem og ferðamönnum í hálfa öld. Sundlaugin sjálf hefur ekki stækkað á þessum tíma en umgjörðin og umhverfið hefur tekið stakkaskiptum. Laugin er 12,5 metra löng og á svæðinu í kringum hana hefur verið komið fyrir þremur heitum pottum, barnalaug og gerð fín aðstaða fyrir þá sem taka sólböð fram yfir sundböð. Sundlaugin er opin rúma 10 mánuði á ári sem er ekki slæmt af útilaug að vera og er það mikil breyting frá því sem áður var þegar eingöngu var opið yfir sumartímann.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica