Ferðamenn allstaðar
Mikill fjöldi ferðafólks er á Hornafirði þessa dagana, rútur og smærri fólksflutningabílar eru hreinlega út um allan bæ. Bærinn iðar af lífi og tungumálaflóran er fjölbreytt. Ekki skemmir blíðan fyrir og vonandi helst hún sem lengst, hvað sem veðurfræðingarnir segja. Óslandið, höfnin og Leiðarhöfði eru staðir sem draga að sér ferðamennina og má oft sjá ótrúlegan fjölda fólks á þessum stöðum.
Katharina Seiterle sem er frá Sviss sat á bekknum upp á Leiðarhöfða og var að skrifa á póstkort til vina og kunningja í morgun. Hún sagðist ætla að stoppa hér í 2 daga en síðan lægi leiðin til Seyðisfjarðar þar sem hún tæki Norrænu til Osló og flygi svo þaðan til Sviss. Katharina sagði að Hornafjörður væri fallegur staður, fjallahringurinn, jökullinn og höfnin var það sem heillaði hana mest og hún var mjög ánægð með að geta gengið fram með strandlengjunni “þetta er ekki hægt í öllum bæjum” sagði hún glöð í bragði.





Skrifa athugasemd