Erlendir aukýfingar á Hornafirði.
Þota af gerðinni Falkon 900 kom til Hornafjarðar sl. laugardag og var þar til kvölds. Þar voru á ferð 10 erlendir auðkýfingar sem fengu leigðan bíl hjá Guðbrandi Jóhannssyni til að fara upp á jökul og suður að Jökulsárlóni þar sem farið var í siglingu um lónið. Íslenskur fararstjóri var með hópnum. Veður var eins og best var á kosið og var ferðin mjög góð auglýsing fyrir Hornfirska náttúrufegurð. Þetta er önnur Falkon þotan sem kemur til Hornafjarðar í sumar.
Guðbrandur hitti þotueigandann þegar hópurinn var að fara og gafst kostur á að líta inn í þotuna, sem minnti helst á sjö stjörnu hótel, allt leðurklætt í bak og fyrir , leðurhægindastólar og fátt sem minnti á þær farþegaflugvélar sem við þekkjum sagði Guðbrandur. Hann sagði að fólkið hefði verið mjög ánægt með ferðina.
Til gamans má segja frá því að fyrr í sumar fór Guðbrandur með auðkýfing frá Boston og fjölskyldu hans upp á jökul ásamt siglingu um Jökulsárlón. Sú fjölskylda leigði flugvél (Rör) hjá Flugfélagi Íslands ásamt fararstjóra. Þegar komið var upp á jökul nenntu unglingarnir sem með voru í ferðinni ekki að fara inn á jökul þar sem þeim fannst ekki nógu bjart úti, þau kúrðu sig því í bílnum á meðan. Þegar búið var að sigla um lónið bað karlinn fararstjórann að fara með krakkana, sem honum fannst greinilega ekki nógu áhugasamir, í flugvélina og til Reykjavíkur. Síðan snéri hann sér að Guðbrandi og spurði hvort hann gæti ekki farið með sig á bílnum til 101 Reykjavík, hann væri búinn að skoða landið úr lofti og vildi líka sjá það af landi. Guðbrandur sagði að þetta hefði verið hið besta ferðalag, karlinn skemmtilegur og viljað fræðast sem mest um landið og tekið aragrúa af myndum.
Svona eiga ferðamenn að vera.





Skrifa athugasemd