Ágúst
Í þá gömlu góðu daga!
Í þá gömlu góðu daga!

26.08.2003 Ágúst

Landað 5 tonnum af sandkola!

Nú fer nýtt kvótaár að ganga í garð og Fiskistofa búin að gefa út úthlutun aflaheimilda. Hornafjörður fær í sinn hlut 4,1% af úthlutuðu aflamarki eða 15.250 tonn. Í kvóta úthlutun er Skinney-Þinganes í 10. sæti á landsvísu og fær í sinn hlut 9.920 þorskígildistonn sem er 2,6% af heildinni. Í útgefnum aflatölum Fiskistofu kemur fram að á Hornafirði var landað 33.965 tonnum fyrstu sjö mánuði ársins en á sama tíma árið 2002 var aflinn 41.200 tonn. Mestu munar um loðnuna, en árið 2002 var loðnu aflinn á þessu tímabili 30.652 t. en 20.268 t. árið 2003.

Til gamans má nefna að fyrstu sjö mánuði þessa árs hefur á Hornafirði orðið aukning frá síðasta ári í löndun á steinbít um 165 t., skötusel um 60 t., sandkola um 5 t., ufsa um 332 t., síld um 2.298 t. og langlúru um 39 t. Aftur á móti var landað 11 t. minna af löngu og 9 t. minna af keilu það sem af er þessu ári.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica