Ágúst
Séð frá nýja vatnstanknum í blíðunni í morgun
Séð frá nýja vatnstanknum
Séð frá nýja vatnstanknum

28.08.2003 Ágúst

Drápsklettaskógur eða Hafnarskógur?

Búið er að endurreisa og koma aftur á stað starfsemi Skógræktarfélags Austur-Skaftafellssýslu og búið að kjósa nýja stjórn í félaginu. Næg verkefni eru framundan og er útivistarsvæði við Drápskletta þar efst á lista. Skógræktarfélagið er með tvö skógræktarsvæði til umráða, annað er í Haukafelli sem er í eigu félagsins, hitt er nýtt 25 hektara svæði við Drápskletta rétt austan við tjaldstæðið á Höfn. Það svæði leggur sveitarfélagið til í verkefni sem kallast landgræðsluskógar.

Þetta er verkefni sem Skógræktarfélag Íslands annast með sérstökum sjóði sem ríkið leggur til fé og sveitarfélögin geta sótt í, forsenda til að fá úthlutað úr sjóðnum er að eiga girt land. Sjóðurinn úthlutar síðan plöntum allt eftir þörfum hvers félags. Við erum í samstarfi við Lionsklúbbinn og skólana um skórækt segir Elín Harðardóttir ein af stjórnendum félagsins. Skólarnir reyna að koma á hverju ári og gróðursetja plöntur og Lionsklúbburinn setti plöntur niður í nýja svæðið í fyrra og eins verður í haust. Elín segir að það sé eins í skógræktarfélaginu og öðrum áhugamannafélögum að erfitt sé að fá fólk í sjálfboðavinnu, því var farið út í að fara á stóru vinnustaðina á Höfn og leita liðsinnis þeirra. Þetta bar góðan árangur og hafa starfsmenn Landsbankans, Sparisjóðsins og Ráðhússins komið og gróðursett plöntur.Vonandi eiga starfsmenn fleiri vinnustaða eftir að koma í gróðursetningu og við erum að láta okkur dreyma um að þarna sé hægt að hafa sérstaka reiti t.d Ráðhúslund, Sparisjóðs-og Landsbankalund o.s.frv. segir Elín.
Nú er unnið að því að gera þessi svæði aðgengileg fyrir almenning, gönguleiðir bættar og þeim fjölgað, fræðsluskilti sett upp og reynt verður að gera svæðið sem mest aðlaðandi til útivistar og því fleiri sem taka þátt í uppbyggingu á þessu útivistarsvæði fyrir bæjarbúa því fyrr verður það að veruleika. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort útivistarsvæði Hornfirðinga skuli heita Drápsklettaskógar eða Hafnarskógar. Nafnið Drápsklettar, mun eftir því sem best er vitað, vera tilkomið af því að hér áður fyrr hafi búfé verið slátrað við klettana.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica