Hundrað kíló á fjórum dögum.
Heimir Þór Gíslason notaði veðurblíðuna í dag til að þurrka fjallagrösin sem hann týndi í sumar. Heimir fékk hundrað kg. af fjallagrösum á fjórum dögum þegar hann skrapp á grasafjall fyrr í sumar. Á leiðinni austur tók hann upp í bílinn göngu-ferðamann frá Tékklandi og þegar Tékkinn fékk að vita hvert Heimir væri að fara vildi hann endilega fara með á grasafjall .Leyfið fékk hann og var í tvo daga í grasatýnslu og fannst það ævintýri líkast að vera inn á Möðrudalsöræfum að týna fjallagrös.
Fjallagrös finnast um allan heim þar sem annar gróður kæfir þau ekki segir Heimir, t.d. á hálendi í Írak, Íran, Júgóslavíu og Síberíu. Yfir tuttugu tegundir fjallagrasa er að finna á Íslandi og má þar nefna t.d. Maríugrös og Mundagrös. Talsverður munur er á bragði grasanna eftir tegundum, beiskju bragðið er missterkt en svo eru sumar tegundir alveg án þess. Heimir segir að fjallagrös sem týnd séu á Melrakkasléttu fljóti þegar þau eru sett í vatn en þau sem týnd eru á Jökuldalsheiði sökkvi til botns. Aðspurður um ástæðuna fyrir þessum mismun segir hann brosandi að grösin á Melrakkasléttunni séu bara svo mikið loftkenndari, þau séu í Þingeyjarsýslu





Skrifa athugasemd