Mikið um að vera í Hafnarskóla
Í dag fimmtudag og á morgun föstudag verða öðruvísi dagar í Hafnarskóla. Yfirskrift daganna er ?Vinátta og virðing?. Á vinadögum verður unnið með ábyrgð nemendanna sjálfra á því sem þeir taka sér fyrir hendur. Nemendur munu taka þátt í hópavinnu og er boðið upp á 16 mismunandi hópa. Í hádeginu í dag er síðan afrakstur morgunsins til sýnis fyrir foreldra og aðstandendur. Starfræktur verður lítill matsölustaður í hádeginu þar sem hægt verður að fá súpu og brauð á vægu verði. Milli kl. 13 og 14 í dag eru eldri borgarar boðnir sérstaklega velkomnir í skólann.
Á morgun er síðan sund- og útivistardagur og munu nemendur fara út í Skógey og fræðast um hana og síðan leika sér saman í sundlauginni.





Skrifa athugasemd