Mikið í gangi hjá Vegagerðinni
Von er til að gengið verði frá útboði í göngin undir Almannaskarð í lok þessa mánaðar og að byrjað verði á verkinu þegar líða fer á veturinn sagði Reynir Gunnarsson hjá Vegagerðinni. Það er ekki neinn afturkippur í þessum framkvæmdum, þetta hefur bara gengið hægar en ætlað var í upphafi. Suðurverk er að byrja á endurbyggingu á veginum við Kotá í Öræfum. Tilboð Suðurverks var 28.401 mkr. en áætlaður kostnaður var 37.391 mkr. Innifalið í tilboðinu var einnig niðurrif á brú yfir Heiðarlæk, sem er nokkru vestar, og setja rör í stað brúar.
Reynir sagði að varnargarðar við Jökulsá í Lóni yrðu boðnir út í næstu viku. Þar verða gerðir alls 2 ½ km langir garðar til að verja lönd Volasels og Krossalands fyrir ágangi Jökulsár, en hún olli miklu tjóni þar í fyrra þegar hlaup kom í ána. Grjótvörn í garðana verður 11.900 rúmmetrar og fyllingarefni 42.500 rúmmetrar. Landgræðslan er framkvæmdaaðili að verkinu en Vegagerðin sér um útboð þess.





Skrifa athugasemd