Nóvember
Æfing í Grunnskóla Mýrdalshrepp (mynd:Sigurður Hjálmarsson)
Æfing í Grunnskóla Mýrdalshrepp (mynd:Sigurður Hjálmarsson)

11.11.2003 Nóvember

Skjálftavirkni hefur ekki dottið niður

Varla hefur sá dagur liðið undanfarið að ekki hafi komið fréttir í útvarpi og blöðum um jarðskjálftavirkni í Mýrdalsjökli og Vatnajökli að vísu ekki stórir kippir en gætu verið fyrirboðar eldgosa. Eldgos úr þessum jöklum myndu hafa mikil áhrif á hornfirðinga og vegasamband við suðurland lokast. Til að fá frekari fréttir af skjálftavirkni var haft samband við Veðurstofu Íslands.

Jarðskjálftavirkni í Mýrdalsjökli síðustu vikurnar er svipuð og hún var um þetta leiti í fyrra sagði Steinunn Jakobsdóttir jarðeðlisfræðingur á Veðurstofu Íslands. Það sem helst hefur verið afbrigðilegt núna er að skjálftavirkni hefur ekki dottið niður, en venjulega hefur virkni á síðustu árum byrjað í lok júlí og verið fram yfir jól. Þetta er það sem er óvenjulegt. Steinunn segir að alltaf sé fylgst með Mýrdalsjökli og öllu svæði þar sem virkni er. Það er ekkert núna sem segir okkur að gos sé að hefjast í Kötlu og þeir sem hyggja á jóla-ferðir til Reykjavíkur ættu að vera nokkuð öruggir með færðina allavega eins og er.


Meiri skjálftavirkni er í Vatnajökli en var á sama tíma í fyrra og heldur meiri virkni við Grímsvötn en hefur verið sl. tvö ár segir Steinunn. Mest skjálftavirkni er núna norðan við Vatnajökul milli Öskju og Herðubreiðar og er það heldur óvanalegt en þó er ekkert í augnablikinu sem bendir til að þar sé að byrja eldgos. Askja gaus síðast 1961.

Við verðum ekki vör við þessa smá skjálfta frá Kötlu segir Sigurður Hjálmarsson formaður Rauðakross-deildarinnar í Vík.Við erum ekkert að hugsa um þetta á hverjum degi en erum vel undirbúin fyrir Kötlugos. Við höfum haft okkar föstu áætlun í fjölda ára og almannavarnarnefnd kallar eftir að Rauðakross-deildin hér uppfæri sína áætlun á hverju hausti. Við útfærum sérstök rýmingarblöð fyrir hverja götu, sem svo eru samrýmd við björgunarsveitina og er hugsað þannig að björgunarsveitin rými þorpið og sendir jafnóðum alla skráningu til Rauðakrossins. Þetta vita allir hér, það er margbúið að kynna þetta þannig að enga stund tekur að bera saman skráningarblöðin frá hverri götu og sjá hvort allir hafi fundist. Þetta er kerfi sem við höfum algerlega búið til og lagað eftir okkar þörfum og aðstæðum við rýmingu húsa vegna Kötlugoss segir Sigurður.

Við erum með tvær fjölda-hjálparstöðvar, annars vegar í skólanum ef verður önnur vá en Kötlugos, en verði gos notum við leikskólann sem stendur hærra. Komi hlaup lokast leiðin suður og reiknað er með miklu stærra hlaupi en var í Skeiðará eftir gosið. Mestar líkur eru taldar á að hlaupið fari yfir Mýrdalssand og segir Sigurður það skásta kostinn en hinir eru að hlaupið fari yfir Sólheimasand og eins gæti það komið niður Þórsmörk og í Markarfljót sem væri alvarlegast af öllu og þá er Hvolsvöllur í hættu yrði stórt hlaup.

Það er engin spurning um hvort Kötlugos verði heldur hvenær og við verðum öll að vera við því búin.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica