Nóvember
Hvergi slegið af í vinnunni
Hvergi slegið af í vinnunni

13.11.2003 Nóvember

Ágætt atvinnuástand

Atvinnuástand á Hornafirði hefur verið með besta móti í hausti og fáir á atvinnuleysisskrá. En að lokinni sláturtíð hefur störfum fækkað og sagði Heiðveig M. Jónsdóttir starfsmaður Vökuls stéttarfélags að s.l. föstudag hefðu 23 einstaklingar verið á atvinnuleysisskrá á Hornafirði. Á sama tíma í fyrra voru mun fleiri einstaklingar skráðir atvinnulausir, þannig að þrátt fyrir þennan fjölda atvinnulausra geta menn verið nokkuð sáttir. En auðvitað er óskastaðan að engin sé skráður án vinnu.

Á skrifstofu Vökuls á Stöðvarfirði hefur Anna María Sveinsdóttir verið ráðin til starfa og Guðni Hermannsson hefur verið ráðinn sem umsjónarmaður rekstarfélagsins á Einarsstöðum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica