Nóvember
Meiri afli á land
Fyrstu tvo mánuði fiskveiðiársins 2003-2004 hefur verið landað á Hornafirði samtals 10.045 t. sem er aukning upp á 2.361 t. miðað við sama tímabil á s.l. ári. Mest munar um 1.023 t. aukningu á síld og 824 t. aukningu í þorski. Fleiri ýsur skila sér líka á land á þessu hausti, og er aukning þar upp á 179 t. Ufsinn er ekki jafn viljugur á miðunum það sem af er og hefur verið landað 43 t. minna af þessum eðalbláa fiski fyrstu tvo mánuði fiskveiðiársins.
Fyrstu tíu mánuði ársins hefur verið landað á Hornafirði 45.172 t. samkvæmt skýrslu frá Fiskistofu. Mestu hefur verið landað af loðnu, 20.268 t., síld, 11.473 t. og 8.632 t. af þorski.





Skrifa athugasemd