Nóvember
Kindin og kiðlingarnir tveir (mynd:Jens Ólsen)
Kindin og kiðlingarnir tveir (mynd:Jens Ólsen)

17.11.2003 Nóvember

Stolt af fósturbörnunum

Hún var greinilega stolt og hreykin af fósturbörnum sínum, hvíta ærin frá Brekkubæ við réttirnar í haust. Fósturbörnin eru tveir kiðlingar sem urðu móðurlausir nýfæddir og því var gripið til þess ráðs að venja þá undir á, sem hafði misst lömb sín. Kristín Einarsdóttir á Brekkubæ í Nesjum hefur átt nokkrar geitur í mörg ár og í vor fótbrotnaði ein geitin hennar það illa að aflífa þurfti hana frá tveim nýfæddum kiðlingum. Það tók smá tíma að fá ána til að taka þessi fósturbörn að sér, en allt gekk þetta vel og hélt hún sig inn til fjalla í sumar með kiðlingana sína. Eftir réttir héldu ærin og kiðlingarnir aftur til fjalla og eru þar ennþá.

Kristín á sex geitur sem komnar eru í hús heima og ellefu sem ekki náðust í hús í fyrra, þær hafa haldið sig í landi Horns og í Gjádal og mun þeim hafa fjölgað nokkuð. Geitin sem þurfti að aflífa var ein þeirra. Geitur eru á tveim öðrum bæjum í Hornafirði, Fornustekkum og Dynjanda. Á nýafstöðnu landsþingi geitaeigenda kom fram að alls eru 370 geitur í landinu og er stofninn í mikilli útrýmingarhættu. Útrýmingarhætta er talin ef fjöldi dýra fer niður fyrir eitt þúsund.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica