Nóvember
Á Illakambi
Á Illakambi (mynd:Þorkell Kolbeins)
Á Illakambi (mynd:Þorkell Kolbeins)

18.11.2003 Nóvember

Ferðaklúbburinn 4x4 á Hornafirði

Miðvikudaginn 12. nóvember s.l. var boðað til kynningar- og eða stofnfundar Hornafjarðardeildar ferðaklúbbsins 4x4. Rúmlega 30 manns mættu á fundinn og hlýddu á Kjartan Gunnsteinsson formann landsamtakanna og Hallgrím Óla formann Húsavíkurdeildar 4x4 kynna starfsemi ferðaklúbbsins. Í framhaldi af framsögum þeirra félaga var ákveðið að stofna deild innan Ferðaklúbbsins 4x4 á Hornafirði. Kosin var fimm manna stjórn og var formaður kjörinn Þorkell Kolbeins. Aðrir í stjórn eru Sigurjón Einarsson, Árni Pétur Hilmarsson, Jón Bragason og Sveinbjörn Steinþórsson.

Markmið félagsins er m.a. að ná til sem flestra sem áhuga hafa á ferðalögum um landið á fjórhjóladrifsbifreiðum. Að gefa gott fordæmi um umgengni og verndun landsins. Efla þekkingu félagsmanna á öllu sem við kemur útbúnaði fjórhjóladrifsbifreiða og ferðalögum um byggðir og óbyggðir landsins.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica