Nóvember
Mikið af síld á leið til Hornafjarðar
Ágæt síldveiði hefur verið í Kolluál, út af Faxaflóa. Ásgrímur Halldórsson SF 200 er væntanlegur til hafnar kl. 14:00 í dag með fullfermi. Jóna Eðvalds SF 20 og Steinunn SF 10 sem einnig voru að veiðum í Kolluál, lögðu af stað af miðunum í nótt, bæði skipin eru með fullfermi. Það er því von á rúmum 1.800 tonnum af síld næsta sólarhringinn til Hornafjarðar, þannig að næg vinna er framundan hjá Skinney-Þinganes.
Í gær var afskipað 350 tonnum af síldarflökum hjá Skinney-Þinganes. Það er M/V Ludvig Andersen sem flytur þann farm frá Hornafirði til Frakklands.





Skrifa athugasemd