Nóvember
Sólsetur
Sólsetur

27.11.2003 Nóvember

Hálkan á undanhaldi

Hálkan sem hefur verið að hrella ökumenn á Hornafirði síðustu daga er heldur á undanhaldi. Reynir Gunnarsson hjá Vegagerðinni sagði að þokkaleg færð væri suðurum að Kirkjubæjarklaustri. Þar fyrir sunnan er mun meiri hálka. Mikil hálka er í Lóni.
Að sögn Lögreglunnar á Höfn hafa ekki orðið óhöpp vegna hálkunnar utan bílveltu sem varð í Öræfum á þriðjudagskvöld.

Bíllinn sem valt var fiskflutningabíll á suðurleið og varð óhappið efst í Hofsnesbrekkunni og stöðvaðist bíllinn við vegriðið þar sem brekkan byrjar.
Ökumaður slapp með skrámur, en bíll, vagn og fiskfarmur stórskemmdist.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica