Skjólbelta- og skógrækt í Hornafirði
Öllum framkvæmdum á skógarjörðum í Austur-Skaftafellssýslu er nú lokið. Alls var plantað 88.972 plöntum, af því fóru 78.703 plöntur í nytjaskógrækt. Lengd skjólbelta sem plantað var í sumar er 5,38 km. Flestar plöntur í nytjaskógrækt plantaði Bergsveinn Ólafsson á Stafafelli 20.076 pl. Næst komu Meðalfell ehf/ Guðjón Þorbjörnsson með 14.849 pl. og Sigurður Bjarnason Klettabrekku með 13.459. Mjög góður vöxtur var í trjágróðri í sumar og ekki hafa komið upp neinar alvarlegar sýkingar í trjágróðrinum.
Rannveig Einarsdóttir svæðisstjóri hjá Suðurlandsskógum segir að þessa dagana sé starfsfólk Suðurlandsskóga önnum kafið við að ganga frá uppgjöri við skógarbændur og á því að vera lokið fyrir 15.desember. Eftir jólin tekur við ýmiskonar vinna við skráningar, áætlanagerð fyrir næsta sumar og útgáfu kynningar og fræðsluefnis.





Skrifa athugasemd