Desember
Mestu landað hjá Skinney-Þinganes
Búið er að frysta rúm 4.000 tonn af síld hjá Skinney-Þinganes á síldarvertíðinni og Skeggey hefur tekið á móti rúmum 12.000 tonnum til bræðslu. Ásgrímur Halldórsson SF-250 kom til löndunar í nótt með um 350 tonn af síld. Jóna Eðvalds SF-200 er síðan væntanleg í dag með 300 tonn. Steinunn SF-10 er hætt síldveiðum og á skipið að fara í slipp.
Hjá einstökum fyrirtækjum hefur langmestum afla hefur verið landað hjá Sinney-Þinganes á þessari síldarvertíð. Mestum heildarafla á einstaka verstöð hefur hins vegar verið landað í Vestmannaeyjum, tæpum 20.000 tonnum





Skrifa athugasemd