Framkvæmdir hafnar hjá Olís
Framkvæmdir við nýja afgreiðslu Olís á Höfn eru hafnar og á að ljúka í mars-apríl.
Aðalverktakar eru Geir Þorsteinsson og Hans Christensen sem sjá um breytingar á húsi því sem áður var smurstöð í eigu Olís. Aðrir verktakar eru Bragi Karlsson með pípulagnir, Ólafur Karl Karlsson múrari og Hákon Gunnarsson rafvirki. Verkið er allt unnið af heimamönnum. Haukur Sveinbjörnsson umboðsmaður Olís á Hornafirði segir að nýja afgreiðslan verði um það bil fjórum sinnum stærri en sú sem fyrir er. Skrifstofa, kaffistofa og starfsmannaaðstaða verður á efri hæð. Auk verslunar og afgreiðslu Olís verða seldar vörur frá Ellingsen.
Það verður stórt skref framávið fyrir starfsfólk Olís og eins viðskiptavini félagsins að fá afgreiðslustað sem tilheyrir nútímanum, en það verður að segjast að afgreiðslustaðir olíufélaganna á Höfn eru orðnir ansi langt frá því sem tíðkast í dag.





Skrifa athugasemd